Ólíklegt að vextir lækki á þessu ári

Seðlabankinn gat ekki tekið aðra ákvörðun en að halda vöxtum óbreyttum til þess að halda trúverðugleika. Ólíklegt er að vextir lækki á þessu ári. Þetta segir Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka. Rætt er við Ernu í Dagmálum um vaxaákvörðunina í síðustu viku, útgjöld ríkissjóðs, efnahagshorfur og fleira.