Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Ófremdarástand blasti við með lögunum 2016

    Skrifstofufólk hjá tollinum og skattinum í Svíþjóð er farið að klæðast skotheldum vestum þegar farið er í heimsóknir til fyrirtækja. Þetta upplýsir Guðbjörn Guðbjörnsson, yfirtollvörður og fyrrverandi formaður stéttarfélags tollvarða. Ástandið í Svíðþjóð og fleiri Norðurlöndum er orðið mjög alvarlegt og ofbeldi hefur aukist mikið. Tengja margir það við mikla fjölgun flóttamanna. Hann var einn af mörgum sem varaði við inngöngu í Schengen samstarfið á sínum tíma og spáði fyrir um óheillaþróun þegar ný útlendingalög tóku hér gildi 2016. Hann er gestur Dagmála Morgunblaðsins á mánudag og ræðir þar nokkur af hitamálum samfélagsins. Guðbjörn minnir á að um lögin frá 2016 ríkti þverpólitísk samstaða að mestu leiti. Almenningur í Evrópu ber líka ábyrgð á því hvernig komið er. Milljónir flóttamanna streymdu inn í vestræn ríki og meirihluti almennings var því hlynntur. Hluti þeirra flugfélaga sem flýgur til Íslands afhendir ekki farþegalista eins og lög kveða á um. Unnið er að því að semja við Evrópusambandið um lausn á þessu. Þegar Guðbjörn er spurður út í það hvort að flutningaskip sem ekki afhendir farmskrá fái engu að síður afgreiðslu neitar hann því og minnir á að tollalög séu ekki valkvæð. Þá ræðir hann einnig brottrekstur Úlfars Lúðvíkssonar sem kom öllum á óvart.