Grindavík vann góðan sigur á Val, 67:61, þegar liðin áttust við í annarri umferð úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik í Smáranum í Kópavogi í gærkvöldi. Var um fyrsta sigur Grindvíkinga að ræða á tímabilinu Meira
Evrópubikarmeistarar Vals máttu þola sjö marka tap, 33:26, gegn Vardar frá Norður-Makedóníu í fyrstu umferð F-riðils Evrópudeildarinnar í handknattleik karla í Skopje í gærkvöldi. Valur hóf leikinn með besta móti og komst í 0:2 Meira
Orri Steinn Óskarsson er fullur tilhlökkunar fyrir komandi landsliðsverkefni l Honum gengur vel að aðlagast nýju lífi hjá Real Sociedad í spænsku 1. deildinni Meira
Wayne Rooney, knattspyrnustjóri Plymouth í ensku B-deildinni, hefur verið kærður af enska knattspyrnusambandinu vegna hátternis síns þegar hann fékk beint rautt spjald í leik liðsins gegn Blackburn Rovers um liðna helgi Meira
Aldís Guðlaugsdóttir markvörður FH var besti leikmaðurinn í 23. og síðustu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Aldís átti stórgóðan leik í marki Hafnarfjarðarliðsins þegar það fékk Þrótt úr Reykjavík í heimsókn á… Meira
Meistari í tveimur deildum og best í M-gjöfinni annan mánuðinn í röð Meira
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Wales og Tyrklandi í Þjóðadeildinni á komandi dögum. Leikurinn gegn Wales fer fram á föstudaginn og leikurinn gegn Tyrklandi á mánudaginn en báðir fara þeir fram á Laugardalsvelli Meira
Ágúst Ingi náði bestum árangri sem Íslendingur hefur náð á heimsbikarmóti l Er með háleit framtíðarmarkmið og ætlar sér á Ólympíuleikana í Los Angeles Meira
Andri Rúnar Bjarnason, sóknarmaðurinn reyndi úr Vestra, var besti leikmaður 25. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Andri Rúnar, sem er frá Bolungarvík og hóf ferilinn þar, átti stórleik með Vestra á laugardaginn þegar… Meira
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari karlaliðs Fylkis í knattspyrnu, hefur stýrt sínum síðasta leik í Árbænum. Þetta tilkynnti hann í samtali við Fótbolta.net. Fylkir féll úr efstu deild á sunnudag er liðið gerði jafntefli við HK á útivelli Meira
ÍBV gerði góða ferð í Garðabæinn og lagði Stjörnuna að velli, 25:22, í fjórðu umferð úrvalsdeildar kvenna í handknattleik á laugardag. ÍBV er nú með fimm stig í fjórða sæti en Stjarnan er með tvö stig í sjötta sæti Meira
Víkingur heldur toppsætinu þrátt fyrir jafntefli gegn Stjörnunni • Breiðablik gerði jafntefli við Val • ÍA á möguleika á Evrópusæti • HK jafnaði og felldi Fylki Meira
Breiðablik meistari í nítjánda skipti eftir hreinan úrslitaleik gegn Val á Hlíðarenda • Markalaust jafntefli dugði til • Nýliðar Víkings kræktu í þriðja sætið Meira
Titilvörnin fer illa af stað hjá Val • Grindvík sterkari en nýliðarnir í Smáranum Meira
Valur og Breiðablik leika um Íslandsmeistaratitilinn á Hlíðarenda klukkan 16.15 l Blikum nægir jafntefli en Valskonur þurfa sigur l Lokin á hnífjöfnu einvígi Meira
Nýliðar KR fara afar vel af stað í úrvalsdeild karla í körfuknattleik en liðið gerði sér lítið fyrir og lagði Tindastól að velli, 94:85, í 1. umferð deildarinnar á Sauðárkróki í gær. Leikurinn var mjög kaflaskiptur Meira
Magnús Gunnar Karlsson átti sannkallaðan stórleik í marki Gróttu þegar liðið hafði betur gegn ÍBV, 32:30, í 5. umferð úrvalsdeildar karla í handknattleik á Seltjarnarnesi í gær en með sigrinum tyllti Grótta sér á toppinn í deildinni Meira
Elías Rafn Ólafsson hélt marki Midtjylland hreinu þegar liðið heimsótti Maccabi Tel Aviv frá Ísrael í 2. umferð Evrópudeildarinnar í knattspyrnu í Belgrad í Serbíu í gær. Leiknum lauk með sigri Midtjylland, 2:0, en danska liðið er með 4 stig í 10 Meira
Víkingur úr Reykjavík hóf leik í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu í knattspyrnu í gær þegar liðið heimsótti Omonoia Nikósía í 1. umferð keppninnar í Nikósíu á Kýpur. Leikurinn var leikur tveggja hálfleikja en Omonoia Nikósía fagnaði sigri, 4:0,… Meira
Heimir Hallgrímsson, þjálfari írska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur tilkynnt leikmannahóp sinn fyrir leiki gegn Finnlandi og Grikklandi í B-deild Þjóðadeildar Evrópu síðar í mánuðinum. Mesta athygli vekur að Matt Doherty, bakvörður Wolves í… Meira
Víkingur úr Reykjavík hefur leik í deildarkeppni Sambandsdeildar karla í knattspyrnu í dag þegar liðið mætir Omonia frá Kýpur í Levkosía á Kýpur. Omonoia var í styrkleikaflokki þrjú þegar dregið var í deildarkeppnina í Mónakó í Frakklandi 30 Meira
Hareide gerir eina breytingu á leikmannahópnum frá síðasta landsliðsverkefni l Útilokar ekki að fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson verði kallaður inn í hópinn Meira
„Mér líst mjög vel á deildina í ár. Tilfinningin er sú að hún hafi orðið sterkari með hverju árinu undanfarinn áratug,“ sagði Pavel Ermolinskij, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í körfuknattleik, í samtali við Morgunblaðið Meira
Það er fyrsta flokks upplifun að fara á knattspyrnuleik í neðri deildum Englands. Bakvörður gerði það einmitt síðastliðinn laugardag þar sem Birmingham – Peterborough varð fyrir valinu. Leikurinn fór fram á hinum fornfræga St Meira