Ýmis aukablöð Föstudagur, 31. janúar 2025

Fæði, klæði, húsnæði og allt hitt

Fólk sem er á besta aldri í dag hefur upplifað allar stærstu breytingar sem hafa orðið á heiminum síðustu áratugina. Elsta kynslóð þessa lands man til dæmis vel eftir því þegar Ísland var hernumið, sem olli mikilli angist og átti svo eftir að umturna lífi sveitamanna á lítilli eyju í Atlantshafi Meira

Gróa Margrét Finnsdóttir skartaði sínu fegursta eftir að dóttir hennar farðaði hana.

Dýrleif farðaði mömmu

Dýrleif Sveinsdóttir förðunarfræðingur fékk það verkefni að farða móður sína, Gróu Margréti Finnsdóttur, sem er á besta aldri. Hún segir að það skipti máli að næra húðina vel áður en hún er förðuð og raki sé lykilatriði ef markmiðið sé að töfra fram það besta. Meira

„Ég hef mesta trú á því að maturinn sem við borðum sé lykillinn að frísklegu útliti og góðri húð“

Valgerður Matthíasdóttir, Vala Matt, birtist björt og brosandi á skjáum landsmanna þegar Stöð 2 hóf göngu sína 1986, þá 33 ára. Nú er þessi glæsipía 71 árs og er lítið að spá í að hætta að vinna því hún elskar að miðla því sem er fallegt og gott í samfélagi manna. Meira

Ástríðan fyrir listinni heldur Þórunni Elísabetu ungri

Þórunni Elísabetu Sveinsdóttur þekkja eflaust margir en hún er menntaður myndlistarmaður og hefur starfað sem búninga- og leikmyndahönnuður í áratugi, bæði í Þjóðleikhúsinu og í kvikmyndageiranum. Einnig hefur hún haldið fjölda listsýninga í gegnum árin þar sem hún vinnur mikið með fjölbreytt efni og áferðir en einnig texta. Þórunn er mjög virk og enn að vinna en hún er 73 ára og segist ekkert alltaf muna hvað hún sé gömul. Meira

Hér er Kolbrún Linda komin í mark í New York maraþoninu 2023. Gleðin er að sjálfsögðu við völd enda mikið afrek að hlaupa 42 kílómetra.

Hreyfing snýst um að hafa gaman

Hlaupadrottningin Kolbrún Linda Haraldsdóttir hefur verið í skokkhópi Grafarvogs – nú Fjölnis – í rúm þrjátíu ár, með nokkrum hléum. Eftir pásur finnur hún hve gott er að komast aftur í félagsskapinn sem er henni svo kær og segir að hreyfing hafi alltaf snúist um að hafa gaman. Áður fyrr fólst hreyfing og útivist fyrst og fremst í tíma með börnunum, eins og að fara út að hjóla með þeim, en í dag er tíminn meiri og hægt að haga áhugamálum eftir því. Hún verður sjötug á árinu og stefnir á fimmta maraþonið í Chicago af því tilefni. Meira

Anna Laufey Þórhallsdóttir og Lúðvík Lúðvíksson hafa búið á Sléttuvegi í fjögur ár og líkar það vel.

Fannst þetta fyrst eins og mjög langt sumarfrí

Hjónin Anna Laufey Þórhallsdóttir og Lúðvík Lúðvíksson hafa hreiðrað vel um sig í þjónustuíbúðum DAS á Sléttuvegi í Fossvoginum en þau fluttu þangað fyrir fjórum árum og sjá ekki eftir því. Þau segjast alltaf hafa haft jákvæðnina að leiðarljósi í gegnum lífið og þau bera það með sér. Anna Laufey er áttræð og Lúðvík er áttatíu og sex ára en þau giftu sig 1. febrúar 1969 og fagna því von bráðar 56 ára brúðkaupsafmæli. Meira

Ekki aldraðir heldur fullorðnir

Halldór S. Guðmundsson, dósent og varadeildarforseti félagsráðgjafardeildar við Háskóla Íslands, segir að „prinsippið“ síðar á ævinni sé að vera sáttur. Samkvæmt könnun eru 80-90% eldri borgara hérlendis ánægð með lífið og tilveruna enda almennt mjög virk. Að hans mati þarf að endurhugsa skilgreininguna á aldurshópnum 60+ og leyfa þeim sem treysta sér til að taka enn frekari þátt í samfélaginu. Meira

Listir og menning hafa leikið stórt hlutverk í lífi Þórunnar Sigurðardóttur frá því hún var ung stúlka.

„Ég hugsa aldrei um hvort ég sé ungleg, það skiptir mig engu máli“

Þórunn Sigurðardóttir er mikill menningarviti. Hún á að baki áratuga langan feril á sviði menningarmála og hefur afrekað margt, ansi magnað og mikilvægt, í gegnum ævina. Hún lét til sín taka á leiksviðinu á yngri árum sínum en sneri sér síðar að menningarstjórnun og gegndi meðal annars stöðu listræns stjórnanda Listahátíðar í Reykjavík á árunum 2000 til 2008. Meira

Satínbuxur frá Day Birger Et Mikkelsen fást í Company's og kosta 45.995 kr.

Tískuráð sem gefa meiri elegans

Fatastíllinn getur breyst með aldrinum og áherslurnar orðið aðrar. Áhuginn á tísku eða útliti dvínar þó ekki og verður jafnvel enn meiri. En þó eru nokkur góð ráð sem er gott að hafa í huga. Í flestum tilvikum breytist líkaminn með aldrinum. Fagnaðu því frekar en annað. Meira