Fréttir Fimmtudagur, 24. apríl 2025

Þurfa að finna mörg þúsund tonna kvóta

Fleiri strandveiðibátar sækjast eftir því að taka þátt í veiðum sumarsins en nokkru sinni fyrr. Um 900 talsins skiluðu umsókn áður en frestur rann út á miðnætti 22. apríl, en ríkisstjórnin hefur heitið því að tryggja öllum bátum 48 veiðidaga í sumar Meira

Gímaldið verði rifið

Byggingarfulltrúi drap málinu á dreif • Gert í vondri trú Meira

Formaður Sólveig Anna hefur sagt skilið við Sósíalista eftir orðaskipti.

Gengur úr Sósíalistaflokknum

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur sagt skilið við Sósíalistaflokkinn. Það gerir hún eftir orðasennu þeirra Maríu Pétursdóttur, fyrrverandi formanns málefnastjórnar flokksins, í Facebook-hópnum Rauða þræðinum Meira

Rannsókn Lögregla fékk tilkynningu að morgni 11. apríl.

Dóttirin sögð neita sök í málinu

Konan sem grunuð er um aðild að andláti föður síns á Arnarnesi fyrr í mánuðinum var úrskurðuð í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Ríkisútvarpið greinir frá því að konan hafi neitað sök í málinu en lögreglan hefur ekki viljað staðfesta það Meira

Vatnsendi Jörðin Vatnsendi er við Elliðavatn, en verið er að skipuleggja nýtt byggingarland í landi jarðarinnar.

Verðmæti nýrra Vatnsendalóða hleypur á milljörðum

Verið að skipuleggja 200 lóðir á 24 hektara svæði • Verða söluhæfar á næsta ári Meira

Fréttastjóri Heiðar segir Rúv. geta lagt meiri áherslu á stafræna miðla.

Ríkisútvarpið hættir að senda út sjónvarpsfréttir klukkan 22

Ríkisútvarpið hættir að sjónvarpa fréttum klukkan 22 á kvöldin frá og með 2. júlí. Þá verða kvöldfréttirnar sýndar klukkan 20 í stað 19 en sú breyting tekur gildi 24. júlí. Frá þessu greinir Rúv. en breytingarnar voru kynntar starfsmönnum fréttastofunnar á fundi í gær Meira

Dagmál Hildur Björnsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, vill að höfuðborgin nái forystuhlutverki á ný.

Skýrt ákall um breytingar í borginni

Hildur Björnsdóttir í viðtali Dagmála • Ekkert breyttist með nýjum meirihluta í borgarstjórn • Segir borgarbúum blöskra óstjórnin • Þarf að skilgreina grunnverkefni og einbeita sér að þeim Meira

Gímaldið græna Lögmaður Búseta telur verulega annmarka á útgáfu leyfa og á grundvelli þess beri byggingarfulltrúa að afturkalla fyrri ákvörðun sína.

Búseti krefst niðurrifs á gímaldinu

Byggingarfulltrúinn drap málinu á dreif með því að afturkalla kjötvinnsluna • Byggingaraðili nýtti tækifærið og kláraði húsið að utan • Mikil áhætta að halda áfram af fullum krafti eftir að kæruferli hófst Meira

Dómur Framkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2 er áfram í gildi.

Hafnað að ógilda framkvæmdaleyfi

Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað Landsnet og Sveitarfélagið Voga af kröfu hóps landeigenda um að ógilt verði með dómi framkvæmdaleyfi vegna lagningar Suðurnesjalínu 2. Málið var upphaflega höfðað af Náttúruverndarsamtökum Suðvesturlands og… Meira

Miðbakki Eimreiðinni Minør var komið fyrir á sínum fasta stað í vikunni.

Eimreiðin boðar komu sumarsins

Hinn árlegi sumarboði er kominn á sinn stað á Miðbakka við Gömlu höfnina í Reykjavík. Starfsmenn Faxaflóahafna sóttu eimreiðina Minør í geymslu í vikunni og komu henni fyrir á sínum stað. Það hafa þeir gert árlega nálægt sumardeginum fyrsta Meira

Alzheimerlyf Lyf sem hægir á hrörnun heilastarfsemi á upphafsstigum sjúkdómsins hefur fengið markaðsleyfi.

Nýtt alzheimerlyf fær markaðsleyfi

Lyfjastofnun hefur gefið út markaðsleyfi fyrir lyfið Leqembi • Öldrunarlæknar reikna með að hefja meðferð með lyfinu þegar það kemur á markað hér, hugsanlega í haust eða byrjun næsta árs Meira

Stórmeistari Vignir Vatnar vann sína fyrstu skák gegn Carlsen.

Vignir Vatnar lagði heimsmeistarann Carlsen

Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari í skák, gerði sér lítið fyrir í fyrrakvöld og vann ríkjandi heimsmeistara, Magnus Carlson, á sterku netskákmóti, Title Tuesday. Carlsen er fimmfaldur heimsmeistari en þetta var í fyrsta sinn sem Vignir tefldi gegn Norðmanninum sterka Meira

Trilluvogur 1 Eins og fjallað var um á miðopnu Morgunblaðsins í gær telur matsmaður að steypan í þessu húsi frá 2019 sé um margt gölluð.

Byggingargallar alvarlegt vandamál

Sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI segir verið að afla gagna um galla í nýbyggingum á Íslandi l  Formaður Meistarafélags húsasmiða segir hús á Íslandi ekki vera jafn vel byggð og áður Meira

Undirbúningur HM 31 er hafinn

Tæp sex ár þar til Íslendingar halda HM karla í handknattleik ásamt Dönum og Norðmönnum • Rekstri HSÍ verður ekki stefnt í hættu með mótshaldinu að sögn fráfarandi formanns Meira

Afmælisgjöfin Dögg Hauksdóttir, forstöðumaður kvenna- og barnaþjónustu á Barnaspítala Hringsins, tekur við afmælisgjöfinni frá Önnu Björk Eðvarðsdóttur, formanni kvenfélagsins Hringsins, í Hringsal spítalans í gær.

Gáfu 120 milljóna afmælisgjöf

Starf kvenfélagsins Hringsins kristallast um að styrkja Barnaspítala Hringsins • Starfsemin blómleg allt árið • Skýr tilgangur kvenfélagsins hjálpar við nýliðun • Söfnun frá góðgerðarviku Meira

Viðurkenning Listamaðurinn ásamt bæjarstjóranum í Hafnarfirði.

Arngunnur Ýr er bæjarlistamaður

Arngunnur Ýr Gylfadóttir myndlistarkona er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2025. Arngunnur Ýr er sögð hafa skapað sér gæfuríkan feril til áratuga. Verk hennar hafa vakið athygli og hún haldið einka- og samsýningar hér heima, í Bandaríkjunum og á meginlandi Evrópu Meira

Vatnsvernd Framkvæmdastýra Veitna segist ekki vera á móti bílaumferð um Heiðmörk heldur sé hún á móti bílaumferð um viðkvæmustu svæðin.

Heiðmörk áfram útivistarparadís

Takmarka bílaumferð um viðkvæmustu svæðin • Hafna hugmyndum um lokun borholu við Myllulæk • Mislangt verður frá bílastæðum að helstu viðburðastöðum • Fara ekki offari með þessum tillögum Meira

Þórshöfn Tristan Michael Willems, fyrir miðju, deilir hér matzoh-brauðinu meðal gesta páskahátíðarinnar, sem aldrei höfðu bragðað slíkt brauð áður.

Héldu nyrstu páskahátíð í heimi

Tónlistarkennari á Þórshöfn bauð nokkrum vinum sínum til gyðingahátíðar að fornum sið Meira

Breiðholt Nýtt gervigras verður lagt á keppnisvöll Leiknis við Austurberg.

Borgin endurnýjar þrjá gervigrasvelli

Borgarráð hefur samþykkt að heimilað verði innkaupaferli vegna endurnýjunar og lagfæringa á þremur gervigrasvöllum. Kostnaðaráætlun er 300 milljónir króna fyrir vellina þrjá. Um er að ræða aðalvöll (keppnisvöll) á íþróttasvæði ÍR í Mjódd, aðalvöll… Meira

Framtíðarsýn Vindmyllurnar 28 við Vaðöldu verða allar sömu gerðar. Þær munu vissulega setja svip sinn á umhverfið enda munu þær ná upp í 150 metra hæð þegar spaðarnir eru í efstu stöðu.

Spaðarnir eru 70 metra langir

Landsvirkjun er byrjuð að undirbúa flutninga á 28 vindmyllum upp á hálendið • Skipað upp í Þorlákshöfn og fluttar upp að Vaðöldu • Tíu sérútbúnir vagnar flytja hverja vindmyllu upp eftir Meira

Gunnbjörg Óladóttir

Héraðsprestur á Suðurlandi

Biskup Íslands auglýsti nýlega eftir héraðspresti í Suðurprófastsdæmi með sérstakri þjónustu við Fellsmúlaprestakall. Séra Gunnbjörg Óladóttir hefur nú verið ráðin í starfið. Hún er fædd í Reykjavík 26 Meira

Sauðárkrókur Starfsmenn sveitarfélagsins unnu við það í gær að koma endurgerðum Faxa á nýjan stall sinn.

Faxi kominn heim fyrir Sæluviku Skagfirðinga

Sæluvika Skagfirðinga, hin árlega menningarhátíð, verður sett með athöfn í Safnahúsinu á Sauðárkróki næstkomandi sunnudag. Meðal atburða þann dag er afhjúpun á endurnýjaðri styttu af hestinum Faxa, sem stóð við Faxatorg allt frá 1971 til 2023, er sveitarfélagið ákvað að taka hana niður og endurnýja Meira

Sjósókn Mikil aðsókn er í strandveiðar og þarf mögulega töluvert af aflaheimildum til að allir fái 48 veiðidaga.

Gæti þurft 28 þúsund tonna kvóta

Um 900 bátar sóttu um strandveiðileyfi • Stefnir í fjölmennustu strandveiðivertíð allra tíma í sumar • Að meðaltali 680 kíló af þorski í róðri í fyrra • Ríkisstjórnin lofaði að allir bátar fengju 48 veiðidaga Meira

Apple og Meta fengu háar sektir

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tilkynnti í gær að sambandið hefði sektað bandarísku tæknirisana Apple og Meta fyrir brot á löggjöf sambandsins um neytendavernd og samkeppni. Apple fékk sekt upp á 500 milljónir evra eða sem nemur um 72,45… Meira

Kænugarður Selenskí ræddi stöðu mála við blaðamenn í fyrrakvöld.

Viðræðunum slegið á frest

Utanríkisráðherrar Bretlands, Frakklands, Þýskalands og Úkraínu hættu í gær við fyrirhugaðan fund með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Lundúnum, en þar átti að ræða friðartillögur Bandaríkjastjórnar í Úkraínustríðinu Meira

Kasmír Indverskar öryggissveitir rannsaka hér vettvang árásarinnar, þar sem 26 ferðamenn voru myrtir á vinsælum ferðamannastað í fyrradag.

Heita hefndum fyrir árásina í Kasmír

Indverskar öryggissveitir leita að árásarmönnum sem felldu 26 ferðamenn í Pahalgam • Modi boðaði ríkisstjórnina til neyðarfundar • Pakistanar neita allri aðild að ódæðinu • Aukin spenna milli ríkjanna Meira

Frjáls Þessi ungi maður er einn þeirra rúmlega 200 hermanna Úkraínu sem í vikunni fengu frelsi á ný þegar stríðandi fylkingar skiptust á föngum.

Pattstaðan ekki rofin án stigmögnunar

Algjör pattstaða einkennir að mestu stríðið í Úkraínu og hefur gert lengi. Innrásarlið Rússlands hefur ekki þá getu og styrk sem þarf til að leggja Úkraínuher á vígvellinum. Á sama tíma hafa heimamenn ekki fengið þá aðstoð sem þarf frá Vesturlöndum til að brjóta niður sókn Rússa Meira

Vellíðunarsetrið Rómantík og dulúð ríkir í nýja heilsusetrinu hennar Maríönnu sem er við sjávarsíðuna á Seltjarnarnesi þar sem Esjan skartar sínu fegursta.

Sameina krafta sína í að valdefla konur

Maríanna Pálsdóttir og Elísabet Reynisdóttir sameina krafta sína og ætla að standa fyrir námskeiði sem ber yfirskriftina Nærvitund. Í námskeiðinu er hugað að næringu, hreyfingu, hleðslu og slökun fyrir líkama og sál. Þær leggja mikið upp úr að bjóða upp á matseðla sem næra sálina og veita húðinni ljóma. Meira

Á æfingu Eiríkur Hauksson og Matthías V. Baldursson fyrir framan Rokkkór Íslands í liðinni viku.

Íslenskur kór syngur metalmúsík í fyrsta sinn

Senn styttist í tíu ára afmælistónleika Rokkkórs Íslands með Eiríki Haukssyni í Hörpu. Tvennir tónleikar verða á morgun, föstudaginn 25. apríl, og er nær uppselt á þá hvora tveggja. Á efnisskrá verða meðal annars nokkur af vinsælustu lögum Eiríks og auk þess verður kórinn með sér efni Meira