Fréttir Föstudagur, 30. maí 2025

Byggingarleyfi án grenndarkynningar

Þarf ekki að kynna ef byggt er samkvæmt hverfisskipulagi Meira

Ráðherrar Utanríkisráðherrarnir funduðu í Keflavík í gær.

Fundaði með Lemmy í Keflavík

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og David Lammy utanríkisráðherra Bretlands áttu tvíhliða fund á öryggissvæðinu í Keflavík í gær. Breski ráðherrann kom í stutta vinnuheimsókn til Íslands ásamt sendinefnd og yfirgaf landið samdægurs Meira

Strandveiðar Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur lagt fram frumvarpið sem er til bráðabirgða. Skiptar skoðanir eru um ágæti frumvarpsins sem var kynnt í vikunni, nokkrum dögum fyrir sumarfrí þingsins.

Frumvarpið „langt umfram ráðgjöf“

Hart tekist á um strandveiðifrumvarp • Heiðrún Lind segir ólíklegt að Hafrannsóknastofnun veiti blessun sína • Ráðherra sé í „stjórnskipulegum ógöngum“ • Sigurjón Þórðarson fagnar frumvarpinu Meira

Skipunin ófagleg og ólíkleg til árangurs

Gagnrýnir nýstofnaðan spretthóp um Kveikjum neistann Meira

Banaslys Lögregla þakkar þeim sem komu að björgunaraðgerðunum.

Drengur lést í slysi í Hvítá

Tíu ára drengur lést í slysi er dráttarvél hafnaði í Hvítá í Hrunamannahreppi á miðvikudag. Í tilkynningu lögreglu segir að dráttarvélin hafi runnið fram af háum bakka og hafnað ofan í ánni. Drengurinn fannst skömmu eftir slysið og var úrskurðaður látinn á vettvangi Meira

Íþróttir Soccer & Education USA hefur aðstoðað hundruð íslenskra nemenda við að komast í nám til Bandaríkjanna en ekkert lát virðist vera á því.

Hika ekki við að fara út

Brynjar Benediktsson, annar stofnandi fyrirtækisins Soccer & Education USA, sem aðstoðar íslenska nemendur við að fá íþróttastyrki frá bandarískum háskólum, segir nýlega tilskipun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að stoppa vegabréfsáritanir… Meira

Skólabygging Framkvæmdin á lóð Fjölbrautaskólans var ekki grenndarkynnt þar sem samþykkt hverfisskipulag fyrir efra Breiðholt liggur fyrir.

Húsið heimilað án grenndarkynningar

Ekki þarf að grenndarkynna ef hverfisskipulag liggur fyrir • Hverfisskipulag efra Breiðholts gerir ráð fyrir að byggt verði ofan á fjölbýlishús og á bílastæðum • Atvinnustarfsemi leyfð í íbúðum fjölbýlishúsa Meira

Flugvél TF-SIF er eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslu Íslands.

Sif flaug með áhöfn Þórs frá Stafangri

Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, fór í slipp í Noregi á dögunum og verður þar næstu vikur. Áhöfn skipsins var sótt á miðvikudag til Noregs af TF-SIF, flugvél Gæslunnar. Þór var í vikunni siglt til Stafangurs í slipp hjá norska fyrirtækinu GMC Yard AS Meira

Mót Pálmi hafði gaman af íþróttum og verður mótið í anda hans.

Langar að minnast fjölskylduvinar

Halda minningarmót um æskuvin • „Drengskapur og gleði í anda Pálma“ Meira

Hörður Þorleifsson

Hörður Þorleifsson augnlæknir lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 24. maí síðastliðinn, á 97. aldursári. Hörður fæddist 28. maí 1928 í Reykjavík og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Þorleifur Eyjólfsson, byggingarmeistari og arkitekt, og Guðlaug Margrét Halldórsdóttir húsfreyja Meira

Grindavík Bilun varð á háspennustreng sem færir bænum rafmagn.

Rafmagn sló út í Grindavík í gær

Allt rafmagn sló út í Grindavík eftir hádegi í gær þegar bilun varð á háspennustreng sem færir bænum rafmagn. Rafmagn komst aftur á seint í gærkvöldi. Eftir að bilunin var staðsett var farið í að grafa niður að strengnum til þess af gera við bilunina Meira

Hafnarstræti 5-7 Innrétta á íbúðir í þeim hluta húsanna sem snýr út að Tryggvagötu sem er til vinstri á myndinni.

Vilja innrétta íbúðir í miðbænum

Eigendur hafa áhuga á að innrétta íbúðir í fyrrv. skrifstofum Landsbankans í Hafnarstræti 5-7 Meira

Sjómannaþrautir Menn gefa allt í á sjálfan sjómannadaginn.

Hátíðin fær nýtt nafn í ár

Grindvíkingar halda hátíðlega upp á sjómannadaginn þrátt fyrir nafnabreytingu á fögnuðinum • Ekki þörf á auknum öryggisráðstöfunum Meira

ESB Kristrún Frostadóttir og Ursula von der Leyen á fundi í Brussel í apríl.

Falinn 110% tollur Evrópusambandsins

Evrópusambandið hefur lengi kynnt sig sem sameiginlegan markað þar sem vörur, þjónusta, fjármagn og fólk eigi að geta flust frjálst milli aðildarríkja. En raunveruleikinn er flóknari. Innanríkisviðskipti ESB eru í reynd háð duldum hindrunum sem jafnast á við refsitolla Meira

Stríð Horft yfir Gasa frá Ísrael. Hamas segja nýju tillöguna ekki mæta kröfum sínum en kynna sér hana þó.

Ísrael samþykkir vopnahléstillögu

Bandaríkjamenn segja Ísraelsmenn hafa samþykkt nýja vopnahléstillögu • Hamas segja tillöguna ekki mæta sínum kröfum • Vilja að Bandaríkjamenn skuldbindi sig til viðræðna um varanlegt vopnahlé Meira

Moskítófluga Malaría berst í fólk með biti frá sýktri moskítóflugu.

Fljúgandi vörn gegn malaríu

Vísindamenn við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum segja að koma megi í veg fyrir að moskítóflugur beri malaríu til manna með því að gefa flugunum lyf við sjúkdómnum. Malaría dregur um 600.000 einstaklinga, að stærstum hluta börn, til dauða á ári Meira

Reykjanesbær Í Reykjanesbæ búa rúmlega 22.000 manns en þar hefur um helmingur umsækjenda verið vistaður.

Ríkið greiðir fyrir auð búsetuúrræði

Vinnumálastofnun hefur tekið á leigu alls 130 búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd frá 1. júlí 2022 til 1. maí 2025, en ekki eru öll í notkun. Þetta kemur fram í svari Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, við fyrirspurn frá… Meira

Síminn Áslákur Ingvarsson og Hallveig Rúnarsdóttir sem Ben og Lucy.

Áhrifavaldurinn og biðillinn í Iðnó

Óperan Síminn fékk mjög góðar viðtökur á Óperudögum 2022 og 2023 og verður nú flutt aftur, að þessu sinni án hljómsveitar í Iðnó. Fjórar hádegissýningar, 22., 23. og 25. júní og 1. júlí, eru komnar í sölu (tix.is) en allt stefnir í að fleiri sýningar verði síðsumars Meira