Fréttir Fimmtudagur, 5. júní 2025

Norska verðið í uppnámi

Einokunaraðstaða Sildesalgslaget á framboði og fiskverði í Noregi kærð til ESA •  Viðmið veiðigjaldafrumvarpsins á „réttu verði“ á uppsjávarfiski hérlendis í húfi Meira

Breytingar Heinemann tók við í maí.

Tómlegar hillur í nýju fríhöfninni

Ferðalangar kvarta yfir minna vöruúrvali hjá nýjum rekstraraðila fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli • Hvítvínslaust og vinsælar tegundir ófáanlegar • Framkvæmdastjórinn lofar bót og betrun á næstunni Meira

Fagmennska Pétur Jónsson og Sveinn Freyr Sævarsson á veitingastaðnum Tasty í Skútuvogi.

Djúpsteikt súkkulaði að skoskum sið slær í gegn

„Þetta er vinsælt. Viðskiptavinirnir eru ánægðir með þetta,“ segir Pétur Jónsson, annar eigenda veitingastaðarins Tasty í Skútuvogi. Nýverið bættist nýr réttur á matseðil veitingastaðarins, sem sérhæfir sig í hamborgurum Meira

Samkeppni við ríkið helsti vandinn

Afkoma Þórsmerkur ehf. versnaði um 139 milljónir króna á milli ára og var tap ársins 2024 rúmar 348 milljónir króna. Þórsmörk ehf. er móðurfélag Árvakurs hf., útgáfufélags Morgunblaðsins og mbl.is, Landsprents ehf., Póstdreifingar ehf Meira

Grásleppa Sigurjón er formaður atvinnuveganefndar og Sleppu ehf.

Kvóti ónýttur og leynd yfir kaupsamningi

Frumvarp kemur í veg fyrir að Sleppa ehf. missi möguleika á veiðum Meira

Noregur Hluti uppsjávarflota Pelagia bundinn við fiskvinnslu í Herøyholmen.

Einokun á uppsjávarmarkaði kærð til ESA

Kann að setja verðviðmið í veiðigjaldafrumvarpi í uppnám Meira

Sakfelldur Jón Þór, til hægri, við aðalmeðferð í síðasta mánuði.

Sex ára dómur fyrir árásina

Jón Þór Dagbjartsson hlaut í gær sex ára dóm fyrir árás á fyrrverandi sambýliskonu sína og barnsmóður í Vopnafjarðarmálinu svokallaða. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Austurlands í gær. Dómurinn hefur ekki verið birtur en Austurfrétt greinir frá dómsuppkvaðningunni Meira

Skammtímastæði Enginn virðist fylgja reglum bílastæðisins.

Bæjarstjórn lofar breytingum

Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði leita leiða til að leysa úr þeim vanda sem skapast hefur á bílastæðum víðs vegar um bæinn. Bílastæðið við Hótel Velli er merkt sem skammtímastæði en er orðið að geymslusvæði fyrir hjólhýsi, bílhræ og rusl eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær Meira

Vor í Vaglaskógi Júníhretin eru ekki óalgeng á Norðurlandi og Vestfjörðum að sögn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings. Myndin er tekin 8. júní 2024.

Júníhretið gengur yfir landið á ný

Veðrið í upphafi júnímánaðar hefur svo sannarlega leikið landsmenn grátt og eru margir eflaust farnir að sakna hlýjunnar sem var í maí. Óveður í júní og hið svokallaða júníhret eru þó ekki óalgeng hér á landi Meira

Dagmál Sigríður Andersen telur ógerlegt að stjórnin klári öll stóru málin.

Asi líkt og stjórnin lifi ekki til hausts

Sigríður Andersen þingmaður Miðflokksins kveðst lítið skilja í æðibunugangi stjórnarliða við að reyna að keyra öll sín stóru mál í gegn á þessu þingi. Samkvæmt starfsáætlun á að senda þingið heim annan föstudag, þótt líklegt sé að það verði framlengt eitthvað Meira

Þinglok Óvíst er hvort þingið nær að afgreiða öll mál fyrir sumarfrí.

Óvissa ríkir um lok þingsins

Samkvæmt starfsáætlun Alþingis á þinginu að ljúka þann 13. júní en óvíst er hvort það takist. Ríkisstjórnin er með talsverðan fjölda mála sem þarf að afgreiða fyrir þinglok. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis og fyrrverandi umhverfisráðherra, gat lítið tjáð sig um stöðu mála á Alþingi Meira

Alþingi Guðrún segir ríkisstjórnina varla geta staðið með áformunum.

Launahækkunin skýtur skökku við

Stjórnarliði kveðst vilja launahækkun í takti við almennan vinnumarkað Meira

„Áfellisdómur yfir vinnubrögðunum“

Óvíst hverjir verða leigutakar á urriðasvæðunum í Laxá • Fiskistofa úrskurðaði samning Veiðifélags Laxár og Krákár við Stangaveiðifélag Reykjavíkur um veiðirétt ólögmætan Meira

Vörubíll Nýjasta tegund rafmagnsbíls frá Benz, af gerðinni e Actros 600.

Landfari á nýjum slóðum

Opnunarhátíð að Álfhellu á laugardaginn • Nýtt þjónustuverkstæði • Rafmagnsvörubíll Benz kynntur Meira

Vopnafjörður Kaupangur, hús byggt 1884, setur sterkan svip á kauptúnið.

Pláss með sérstöðu fær vernd

Plássið svonefnda í miðbæ Vopnafjarðarkauptúns hefur af Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfisráðherra verið staðfest sem verndarsvæði í byggð, að fenginni tillögu Vopnafjarðarhrepps. Svæðið er um 3,7 hektarar að stærð og nær um elsta hluta byggðar bæjarins Meira

Hrafnagilshverfi Skólabyggingar, sundlaug og byggð íbúðarhúsa í fallega grónu sveitaþorpinu.

Stækkandi staðir í Eyjafirði

Hrafnagil og Lónsbakki • Lítil þorp fyrir norðan og sunnan Akureyri eru í sókn • Skipulagt fyrir frekari vöxt • Framtíð í börnunum • Íbúaþróun fylgir lóðaframboði • Þjóðvegum breytt Meira

Vinsældir Lena Olin í hlutverki Huldu Hermannsdóttur í Dimmu.

Hulda beint í þriðja sætið

Ekkert lát virðist vera á vinsældum rithöfundarins Ragnars Jónassonar í Þýskalandi. Nýjasta bók hans, Hulda , kom út þar í landi á dögunum og stökk beint í þriðja sætið á metsölulista Spiegel sem birtur var í gær Meira

Sjúkraflutningar Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að staðan er ekki viðunandi.

Staðan ekki viðunandi í dreifbýlinu

Sí- og endurmenntun sjúkraflutningamanna ábótavant í dreifðari byggðum • Rannsókn nemenda á Bifröst varpar ljósi á þetta • Engar áætlanir um hvernig ná eigi markmiðum stjórnvalda Meira

Samtal Halla Tómasdóttir forseti Íslands í pallborði með japönskum þingkonum á jafnréttisþinginu.

Húsfyllir á jafnréttisþingi Höllu í Tókýó

Heiða Björg borgarstjóri tók einnig til máls á þinginu Meira

Þyrlumóðurskip Herskipið er tæplega 200 metrar að lengd og má finna þó nokkrar herþyrlur um borð sem geta verið notaðar í hin ýmsu verkefni, t.d. við björgunaraðgerðir eða árásir.

Franski herinn styrkir viðveru sína

Franskt þyrlumóðurskip statt í Reykjavík • Verkefni sem hófst í febrúar og lýkur í júlí • Styrkja samskipti við NATO-ríki • Hundruð sjóliða hljóta þjálfun • Krefjandi veðurskilyrði á Íslandi Meira

Suðurgata Lovísa Ingvadóttir til vinstri og Hekla Petronella Ágústsdóttir, sumarstarfsmenn í kirkjugarðinum, hér við leiði Steinunnar Sveinsdóttur þar sem sett hefur verið upp minnismerki og umhverfið allt fegrað.

Sjöundármálið frá nýju sjónarhorni

Merking á slóðum dysjar á Skólavörðuholti • Gert til góða á legstað Steinunnar • Viðhorfin breytt og sitthvað undarlegt við réttarhöldin fyrir um 220 árum • Málþing um málið haldið í dag Meira

Ánægðar Unnur Thelma Gestsdóttir verslunarstjóri og Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri.

Opna aftur í Vallakór

Verslun Krónunnar í Vallakór í Kópavogi verður opnuð að nýju í dag, fimmtudaginn 5. júní eftir umfangsmiklar endurbætur. Þessi verslun hefur verið starfrækt í alls 12 ár og nú þótti kominn tími á yfirhalningu Meira

Stuðningur Félagar úr Lionsklúbbi Grundarfjarðar, Skotfélagi Grundarfjarðar og Golfklúbbnum Vestarr þegar styrkirnir voru afhentir.

Styrkja skotfélag og golfið

Lions leggur lið í Grundarfirði • Milljón í hvort félag   Meira

Fjöðrin er millimetra frá kvikunni

Járningar hesta verða háskólagrein á Hólum • Nemendur leiðandi í þróun og starfi • Net verknámskennara víða úti um lönd • Blóðflæði og taugar í hófnum • Dýravelferð er leiðarljósið Meira

Útgjöld Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjanna.

Dollarinn niður en vextir upp

Ný gögn benda til þess að samband bandaríkjadals og 10 ára skuldabréfavaxta Bandaríkjanna hafi rofnað og nú eru skuldatryggingarálög ríkissjóðs farin að líkjast þeim sem áður einkenndu veik efnahagsríki Suður-Evrópu, á borð við Grikkland og Ítalíu Meira

Altjón Þessir Birnir eru í hópi þeirra sem sprengdir voru í loft upp þegar yfir 100 árásardrónum var sleppt lausum á rússneskar herstöðvar.

„Óásættanleg hætta“ á stigmögnun

Kjarnorkuregnhlíf Rússlands sködduð eftir sögulega drónaárás Úkraínuhers á skotmörk djúpt inni í rússnesku landi • Hættan er að stóraukast, segir erindreki Bandaríkjaforseta • Evrópa þarf að eflast Meira

Réttlæti Saksóknarar héldu blaðamannafund í tengslum við málið.

Íslamisti sóttur til saka í Svíþjóð

Réttarhöld eru hafin í Stokkhólmi í Svíþjóð yfir herskáum íslamista sem sagður er hafa tekið þátt í aftöku orrustuflugmanns frá Jórdaníu árið 2014. Ódæðismaðurinn heitir Osama Krayem, 32 ára gamall, og afplánar hann nú þegar dóm sem hann fékk fyrir… Meira

Reykjanesbær Þann 1. maí síðastliðinn dvöldu 246 umsækjendur um alþjóðlega vernd í Reykjanesbæ. 138 dvöldu á sama tíma í Reykjavík.

„Sóun á almannafé skattgreiðenda“

Skýr svör vantar frá ríkisstjórn um það hversu lengi skattgreiðendur þurfa að borga fyrir afnot af tómum húsum á vegum Vinnumálastofnunar. Þetta segir Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins, en hann lagði fram fyrirspurn til Ingu Sæland… Meira

Bræðurnir Jakob E. Jakobsson og Benjamín Bent Árnason, alla jafna kallaður Benni, eru ánægðir að vera komnir í blómabæinn Hveragerði og hlakka til sumarsins á Matkránni.

Jómfrúin tekin við Matkránni

Bræðurnir Jakob E. Jakobsson og Benjamín Bent Árnason, alla jafna kallaður Benni, standa í stórræðum þessa dagana á veitingastaðnum Matkránni í blómabænum Hveragerði þar sem Jómfrúin hefur tekið við staðnum. Meira

Vopnafjörður Nikulás Árnason hér með flugstöðina og farkost í baksýn. Twin Otter tekur 19 farþega og þykir afar traust og góð flugvél.

Vopnafjarðarflugið er afar mikilvægt

„Að sjá vélina frá Akureyri koma hér fram Hofsárdalinn með stefnu beint inn á braut vekur alltaf góða tilfinningu,“ segir Nikulás Árnason, flugvallarvörður á Vopnafirði. Þar í sveit er flugið afar mikilvæg samgönguæð, enda er langt í næstu byggðir Meira