Fréttir Fimmtudagur, 12. júní 2025

Kafað í fjármál flokksins

Ný framkvæmdastjórn Sósíalistaflokksins kannar fjárframlög til óskyldra félaga • Ríkisstyrkir ætlaðir starfsemi stjórnmálaflokka flæða í önnur óskyld félög Meira

17. júní Kristrún afsalaði sér hátíðarávarpinu til Höllu Tómasdóttur.

Halla flytur ávarpið í stað Kristrúnar

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur boðið Höllu Tómasdóttur forseta Íslands að flytja hátíðarávarp á Austurvelli á 17. júní, í sinn stað. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Hefði þetta verið fyrsta hátíðarávarp Kristrúnar sem forsætisráðherra Meira

Gagnrýnir áróður gegn stóðhryssum

Hallgerður Hauksdóttir, fyrrverandi formaður Dýraverndarsambands Íslands, gagnrýnir það sem hún kallar áróður gegn íslenskum stóðhryssum og segir hann byggðan á fordómum og vanþekkingu. Í grein í Morgunblaðinu í dag segir hún að hryssurnar búi við… Meira

Bið Kaffihús Starbucks við Laugaveg verður vonandi opnað í ágúst.

Þriggja mánaða bið hjá Starbucks

Opnun kaffihúsa Starbucks frestast fram í ágúst • Mikil óánægja meðal veitingamanna vegna tafa við leyfisveitingar hjá Reykjavíkurborg • Framkvæmdastjóri vissi ekki af nýrri reglugerð Meira

Yfir þúsund mál til Landsréttar í fyrra

Gagnrýna langan tíma ákæruvaldsins að leggja fram gögn Meira

Dagmál Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, er gestur Dagmála í dag.

Þinglok hvergi í augsýn enn

Stjórnarandstöðuþingmaðurinn Snorri Másson tekur undir að það sé mikil spenna í þinginu þessa dagana, en segir merkilegt að spennan sé nær öll hjá stjórnarliðinu, sem sé með „hrúgu af stórum málum“ í fanginu sem lítið gangi að þoka í gegnum hina þinglegu meðferð Alþingis Meira

Umsögn Benedikt Jóhannesson, fv. fjármálaráðherra, gagnrýnir stjórnarfrumvarp fjármálaráðherra um víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna mjög.

Eignaupptaka frá ellilífeyrisþegum

Benedikt Jóhannesson, fv. fjármálaráðherra og stofnandi Viðreisnar, leggst eindregið gegn frumvarpi Daða Más Kristóferssonar, fjármálaráðherra Viðreisnar, um svokallaða víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna Meira

Könnun Flestir telja veiðigjald á fiskveiðar mun lægra en raunin er.

Eðlilegt veiðigjald talið 35,7%

Aðeins tæpur fjórðungur landsmanna telur sig vita hversu hátt hlutfall af hagnaði fiskveiða sé greitt í veiðigjöld, en þegar spurt var um það hversu hátt hlutfallið væri reyndust svörin nokkuð á reiki Meira

Steypa Engin járnbending var höfð í steypuílögn sem lögð var á þakið.

Verktakinn varaði borgina við

Fór fram á skriflega yfirlýsingu áður en ójárnbent steypuílögn var lögð á Brákarborg • Algjörlega óraunhæfur tími í hönnun og framkvæmd • 68% yfir kostnaðaráætlun • 1.950 þúsund á fm Meira

Samdráttur Skemmtiskip eiga við erfiðleika að etja ef fer sem horfir.

Samdráttur í sjónmáli siglinga

Mikill samdráttur í komum skemmtiferðaskipa til Íslands er fyrirséður á næstu árum samkvæmt því sem fram kom á fundi Cruise Iceland sem haldinn var á Parliament hótelinu í Reykjavík á dögunum. Á fundinum komu saman fulltrúar skipafélaga, þingmenn,… Meira

Formaður Katrín Jakobsdóttir er fyrrverandi forsætisráðherra.

Ekki vandamál framtíðarinnar

Samevrópsk nefnd um lýðheilsu og loftslagsbreytingar stofnuð í Hörpu Meira

Mótmæli Jóhann Páll Jóhannsson umhverfisráðherra tekur hér við undirskriftum Laugarnesvina úr hendi Þuríðar Sigurðardóttur, en með henni, f.v., voru Harpa Jónsdóttir, Andrea Fanney Jónsdóttir og Hlíf Sigurjónsdóttir.

Vilja að Laugarnesið verði friðlýst

Laugarnesvinir afhentu umhverfisráðherra á fjórða þúsund undirskriftir • Vilja að ráðherra losi um togstreitu á milli Reykjavíkurborgar og Minjastofnunar • Telja byggingar hindra útsýni Meira

Sumarstund Tími til að njóta á góðum degi í Grasagarðinum í Reykjavík.

Hvað ætla þau að gera í sumar? – Með hjólhýsið í ferð um landið – Vil gott sumar í Grindavík – Gengið með skyt

Leiðangur í Bása á Goðalandi, fjallgöngur inni á öræfum, eltingaleikur við gott veður og þramm um útnes á hreindýraveiðum. Landinn planar sumarfrí og margt spennandi á dagskránni. Meira

Þingvellir Kirkja og ráðherrahús setja sterkan svip á staðinn.

Skundað verður á Þingvöll 15. júní

„Ætlunin er að skapa þarna skemmtilega stund og tilefni til að heimsækja Þingvelli, stað sem margir eiga góðar minningar um en hafa ekki heimsótt lengi,“ segir Einar Á.E. Sæmundssen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum Meira

Glæsilegur Jagúarinn ber aldurinn vel en Morgunblaðið fékk tækifæri til að mynda bifreiðina í gær.

Rennir aftur í hlað á Gljúfrasteini

Á sjötta tug nemenda í Borgarholtsskóla hafa farið höndum um Jagúarinn sem var í eigu Halldórs Laxness • Bifreiðin verður til sýnis á ný á laugardaginn • Verkefni sem tekið hefur mörg ár Meira

Veisla Sjónvarpsþættirnir Succession verða í boði á HBO Max.

Fjögurra ára bið eftir HBO á enda

Opnað verður fyrir streymisveituna HBO Max hér á landi í næsta mánuði. Áskrifendur fá aðgang að fjölmörgum þáttaröðum og kvikmyndum úr smiðju HBO, Warner Bros. Pictures, DC Studios, Max Originals og Discovery auk íþróttaefnis frá Eurosport Meira

Í heimsborginni Ragnar Þorvarðarson við íslenska sendiráðið í Tókýó. Hann kemur að heimssýningunni í Osaka.

Maðurinn á bak við heimssýninguna

Ragnar Þorvarðarson fékk ungur áhuga á Japan og starfaði á heimssýningunni í Japan 2005 l  Nú, tuttugu árum síðar, er Ragnar forsvarsmaður þátttöku Íslands á heimssýningunni í Osaka Meira

Háskóli Íslands Jón Atli Benediktsson, þáverandi rektor, afhendir Ásu Bergnýju Tómasdóttur styrkinn úr sjóði Áslaugar Hafliðadóttur í maí.

Sumir ramba, aðrir vippa, flestir vega salt

Í Hafnarfirði er talað um að ramba eða rambelta, á Ísafirði og í Bolungarvík vippa menn en annars staðar er talað um að vega salt. Svona er eitt af mýmörgum dæmum um það hvernig orðaforði getur verið mismunandi eftir því hvaðan á landinu málhafinn er Meira

Listmálari Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir við eitt verka sinna.

Hrafnhildur Inga fyrst að Kvoslæk

Gleðistund verður á Kvoslæk í Fljótshlíð laugardaginn 14. júní kl. 15, þegar Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir, listmálari frá Vestur-Sámsstöðum, nú búsett á Sámsstaðabakka í Fljótshlíð, kynnir listsköpun sína undir fyrirsögninni Frá hagahliðinu Meira

Sauðfé drapst í slæmu júníhreti

Eitthvað var um að sauðfé dræpist vegna veðurs á Norður- og Austurlandi í júníhretinu sem gekk yfir landið í byrjun mánaðar. Þetta segir Eyjólfur Ingi Bjarnason, formaður deildar sauðfjárbænda innan Bændasamtaka Íslands Meira

Keppni Lionel Messi mætir til leiks á mótið með liði sínu, Inter Miami.

Leikirnir sýndir á Netflix íþróttanna

Streymisveitan DAZN er með sýningarrétt frá Heimsmeistaramóti félagsliða sem hefst um helgina • Reyndu að selja Stöð 2 Sport réttinn • Leikir ókeypis og hægt að horfa á í öllum tækjum Meira

Samgöngur Strætó ætlar að fjölga ferðum og lengja þjónustutíma.

Strætó ætlar að fjölga ferðum

Tíðni ferða Strætó mun aukast frá og með 17. ágúst á fjórum leiðum á annatíma þannig að vagnar ganga á 10 mínútna fresti í stað þess að vera á 15 mínútna fresti. Þar að auki ganga vagnar á þremur leiðum á 15 mínútna fresti í stað 30 mínútna Meira

Klúbburinn Geysir heldur hátíð

Geysisdagurinn svonefndi verður haldinn hátíðlegur í 12. sinn næstkomandi laugardag, 14. júní, milli kl. 11 og 15 í bækistöð klúbbsins sem er að Skipholti 29 í Reykjavík. Geysir er fyrir fólk sem á eða átt hefur við geðrænar áskoranir að stríða og dagskráin fram undan er skemmti- og fjölskyldudagur Meira

Hítardalur Mikil skriða féll úr Fagraskógarfjalli í byrjun júlí árið 2018. Er hún sú stærsta sem fallið hefur á sögulegum tíma á Íslandi. Þó að landið sé talsvert gróið leyna sár skriðunnar sér ekki.

Sjö árum síðar blasir sárið enn við

Skriðan sem féll úr Fagraskógarfjalli ein sú stærsta á sögulegum tíma • Sést vel í landslaginu í Hítardal • Áin breytti um farveg og rennur nú tær út dalinn • Hreyfingar í fjallinu árin á undan Meira

Lestur Rithöfundasamband Íslands gagnrýnir misnotkun á aðgangsréttindum Hljóðbókasafns Íslands.

Gagnrýna misnotkun á aðgengi að Hljóðbókasafninu

Rithöfundar ósáttir • Ólögmæt notkun skerðir tekjur Meira

Ferðagleði Akstur á fjöllum er krefjandi, segir Aldís Ingimarsdóttir.

Fræðsla hvetji til ábyrgra ferða

„Áhyggjuefni okkar jeppafólks er að leiðum inni á hálendinu verði lokað og óþörf takmörk sett undir merkjum náttúruverndar. Mótleikurinn við því er fræðsla og hvatning til ábyrgrar ferðamennsku eins og ég tel okkar fólk almennt stunda,“… Meira

Búrkuskylda Sú sem hér sést til vinstri telst brotleg við lög.

Skylda að klæðast sundbúrkum

Stjórnvöld í Sýrlandi hafa nú leitt í lög ákvæði sem skyldar konur til að hylja líkama sinn enn frekar í almenningi. Þær konur sem t.a.m. vilja njóta sólarinnar á baðströndum verða nú að klæðast svokölluðum sundbúrkum eða öðrum „íhaldssömum“ klæðnaði Meira

Los Angeles Þjóðvarðliðar frá Kaliforníu standa hér vörð um alríkisbyggingu, en einhverjir mótmælendur hafa lagt blóm að fótum þeirra.

Útgöngubann í miðborg Los Angeles

Lögreglan handtók 25 manns í fyrrinótt • Mótmæli gegn ICE breiðast út til annarra borga Bandaríkjanna • Þjóðvarðlið Texas-ríkis kallað út til að tryggja friðinn • New York-lögreglan afþakkar aðstoð Meira

Hallarbylting Gunnar Smári var formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins en honum og fylgifé hans var bolað út á síðasta aðalfundi.

Ríkisstyrkjum ráðstafað í óskyld félög

Styrkir ætlaðir starfsemi stjórnmálasamtaka sem runnið hafa til Sósíalistaflokksins frá hinu opinbera hafa verið veittir áfram í starfsemi sjálfstæðra, óskyldra félaga. Sósíalistaflokkurinn hefur fengið ríflega 100 milljónir króna í styrki frá ríkinu frá árinu 2022 Meira

Snillingurinn Ingunn Tómasdóttir er fræg fyrir að elda eitt besta birria taco-ið að mati þeirra sem hafa smakkað og hefur slegið í gegn í ófáum matarboðum með réttinn sinn.

Birria taco-ið hennar Ingunnar nýtur mikilla vinsælda

Ingunn Tómasdóttir eldaði fyrst birria taco fyrir liðlega tveimur árum og sló heldur betur í gegn. Tveimur árum síðar er hún enn þá að fá beiðnir um að bjóða í birria taco og jafnvel kenna vinum og vandamönnum að elda þennan rétt. Meira

List Ellý Reykjalín í bol úr eigin smiðju, í bakgrunni er klósettgámurinn fagri við heitu pottana á Hauganesi.

Fegursti salernisgámur landsins

Listakonan Ellý Reykjalín hefur vakið athygli með litríkri hönnun á klósettgámi við fjörupottana á Hauganesi í Eyjafirði. Gámurinn hefur hlotið viðurnefnið „fallegasti klósettgámur landsins“ og ekki að ástæðulausu Meira