Fréttir Þriðjudagur, 24. júní 2025

Fasteignagjöld Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi.

Kópavogur einn undir verðbólgu

„Það er pólitísk ákvörðun að lækka fasteignaskatta og önnur fasteignagjöld,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, í samtali við Morgunblaðið, en fasteignagjöld í Kópavogi eru að meðaltali umtalsvert lægri en hjá öðrum sveitar­félögum á höfuðborgarsvæðinu Meira

Donald Trump

Trump tilkynnir vopnahlé

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti á ellefta tímanum í gærkvöldi á samfélagsmiðli sínum Truth Social að vopnahlé væri í höfn á milli Ísraela og Írana eftir tólf daga átök. Sagði Trump að vopnahléið tæki gildi í áföngum, og að Íranar myndu… Meira

Tæpir 13 milljarðar í fjárstyrki á sex árum

„Þetta eru svakalega háar fjárhæðir,“ segir alþingismaður Meira

Fyrirspurnir Kristrún Frostadóttir.

Auðlindarentan „huglægt mat“

Veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar hvílir ekki á þeim fræðilega grunni sem sumir stuðningsmenn þess hafa látið í veðri vaka, ef miðað er við svör Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi síðdegis í gær Meira

Hvítabandið Borgaryfirvöld vilja ekki leyfa eiganda hússins að rífa það og endurbyggja með sama útliti. Eigandinn vill rifta kaupsamningi við ríkið.

Eigandi hyggst krefja ríkið um skaðabætur

Niðurstaða skipulagsfulltrúa Reykjavíkur um að synja eiganda húss Hvítabandsins við Skólavörðustíg um leyfi til að rífa húsið og endurbyggja með sama útliti var staðfest á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur í síðustu viku Meira

Útlendingum fjölgar í fangelsum

Erlendir ríkisborgarar voru 42% fanga í íslenskum fangelsum í fyrra og hefur fjölgað mjög undanfarin ár, en árið 2019 voru fangelsaðir erlendir ríkisborgarar 21% af heildarfjölda fanga og 14% árið 2014 Meira

Palestínumenn þáðu háa fjárstyrki frá ríkinu

Ríkissjóður endurgreiddi sveitarfélögum tæpa 13 milljarða 2019 til 2024 Meira

Langtímastæði Húsbíllinn hefur staðið á sama stæði vikum saman. Heilbrigðiseftirlitið hefur áminnt eigandann.

Nýta bílastæði í götu sem langtímastæði

Lögfræðilega flókið og þarf að skýra, segir borgarfulltrúi Meira

Dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir morðið

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær Sigurð Fannar Þórsson, sem banaði tíu ára dóttur sinni að Hraunhólum við Krýsuvík, í 16 ára fangelsi vegna morðsins. Samhliða sektardómi fyrir manndráp var Sigurður Fannar einnig dæmdur fyrir fíkniefnalagabrot en… Meira

Fasteignagjöldin lægst í Kópavogi

Mjög misjöfn þróun fasteignagjalda á höfuðborgarsvæðinu • Langhæsta meðaltalið á Seltjarnarnesi • 54% hækkun fasteignagjalda í Mosfellsbæ á 4 árum • Kópavogur einn hækkaði ekki umfram verðbólgu Meira

Efling skoðar kjaramál Kastrup

Efling hefur á borði sínu kjaramál er varða starfsfólk veitingastaðarins Kastrup. Mál starfsfólksins eru mismunandi en snúa flest að vangreiddum launum eða vanreiknuðum launum og orlofi hjá fyrri rekstraraðila Meira

Gufunes Fórnarlambið var skilið eftir á leiksvæði nær dauða en lífi.

Öll neita sök í manndrápsmáli

Hrottalegt ofbeldi og hreinar pyntingar • Skilinn eftir til að deyja Meira

Sóttvarnalæknir Guðrún Aspelund segir lítið um covid í samfélaginu.

Nýtt afbrigði ekki greinst hér

Nýtt afbrigði kórónuveirunnar, NB.1.8.1, hefur ekki greinst í raðgreiningum í sýnum hér á landi, en borið hefur á afbrigðinu í útlöndum. Nýja afbrigðið kallast nimbus og virðist hvorki vera meira smitandi né valda skæðari veikindum en önnur afbrigði veirunnar Meira

Við Djúp Sundlaugin í Reykjanesi á sér langa sögu. Myndin er líklega tekin á fjórða áratug síðustu aldar. Auk 100 ára afmælis skólans eru níutíu ár síðan héraðsskólinn var stofnaður þar.

Aldarafmæli sundlaugarinnar

Söguskiltum verður komið fyrir í Reykjanesi í júlí • Í tilefni af aldarafmæli sundlaugarinnar og þess að níutíu ár voru í fyrra liðin frá því að skólastarf hófst í gamla héraðsskólanum á staðnum Meira

Gera tilraunir með sorpflokkun

Reykjavíkurborg hyggst setja af stað tilraunaverkefni um flokkun sorps í borgarlandinu. Verkefnið var kynnt í umhverfis- og skipulagsráði á dögunum og verður því hleypt af stokkunum á næstunni. Í umfjöllun um þetta verkefni í umhverfis- og… Meira

Teymi María Rós Skúladóttir ráðgjafi hjá KPMG, Hilmar Jón Stefánsson teymisstjóri barnaverndarþjónustu Suðurnesjabæjar, Guðrún Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Jóhanna María Ævarsdóttir, Eyrún Líf Sigurðardóttir, Katrín Pétursdóttir og Vala Ósk Ólafsdóttir frá barnaverndarþjónustu Suðurnesjabæjar og Hildur Lára Jónsdóttir frá KPMG.

100 milljarðar í félagsþjónustu

Nýtt mælaborð getur nýst öllum sveitarfélögum á landinu • Tíma illa varið og fjármunum sóað • Gríðarlega viðkvæmur málaflokkur • Eykur mannlega tengingu og samskipti • Stafræn umbreyting Meira

Samvinna Sprengjuvél af gerðinni B-2 sést hér taka eldsneyti á lofti.

Blekkingarleikur leiddi loftárásina

Næstlengsti árásarleiðangur B-2 frá upphafi • Sprengjuvélar héldu í vestur til að villa um fyrir áhugamönnum á meðan aðrar héldu í austurátt til árásar • Alls voru herflugvélarnar nærri 150 Meira

Samherjar Starmer hitti Selenskí ásamt hermönnum í Lundúnum.

Ekkert lát á árásum í Kænugarði

Ellefu ára stúlkubarn lést í sprengjuárás Rússa í Kænugarði í gær. Alls dóu tíu manns og fleiri slösuðust í árásinni sem beint var að íbúðablokk í borginni. Þrjár vikur eru síðan fulltrúar Úkraínu og Rússlands hittust í Istanbúl til að ræða frið milli ríkjanna Meira

Katar Hér má sjá brak úr einni af eldflaugunum 14 sem Íranar skutu á herstöð Bandaríkjamanna í Katar í gærkvöldi, en engin náði að skotmarki sínu.

Enginn féll í hefndarárás Írana

Íranar skutu fjórtán eldflaugum á herstöð Bandaríkjahers í Katar • Þrettán af flaugunum skotnar niður • Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita fyrir fram • Pahlavi segir klerkastjórnina riða til falls Meira

Áhyggjur Niðurstöður könnunar Gallup um horfur í efnahagslífinu eru áhyggjuefni fyrir atvinnulífið. Ákall er eftir því að stjórnvöld bregðist við.

Viðhorf til efnahagslífs mikið áhyggjuefni

Mikið áhyggjuefni er að þriðjungur fyrirtækja í sjávarútvegi sjái fyrir sér að fækka þurfi starfsfólki á næstu sex mánuðum, að mati Vilhjálms Birgissonar framkvæmdastjóra Starfsgreinasambandsins (SGS) Meira

Tveir góðir Sigurbjörn og Flóki frá Oddhóli. Hann og Sara Sigurbjörnsdóttir urðu heimsmeistarar í fimmgangi með 7,90 í einkunn á HM í Hollandi 2023.

Margir eru kallaðir en fáir útvaldir

Íslandsmót fullorðinna og ungmenna í hestaíþróttum fer fram á Brávöllum á Selfossi 26.-29. júní og að því loknu verður landsliðshópurinn vegna Heimsmeistaramóts íslenska hestsins 4.-11. ágúst í Sviss valinn og hann síðan tilkynntur 11 Meira