Fréttir Fimmtudagur, 19. júní 2025

Þingfundir í júlí mögulegir

Kemur til greina að láta fundi Alþingis halda áfram þar til öll mál eru afgreidd • Reglulegt fundahald þingsins í júlí án fordæma • Ekkert því til fyrirstöðu í lögum Meira

Íslenski fáninn 110 ár eru í dag frá konungstilskipun um íslenska fánann.

Merkisdagur í sögu þjóðarinnar

Í dag eru liðin 110 ár frá því að þjóðfáni Íslands var staðfestur með sérstakri tilskipun Kristjáns 10. Danakonungs, sem og að kosningaréttur var gerður almennur bæði fyrir karla og konur. Með fánatilskipun konungs var loks útkljáð fánamálið, sem… Meira

Breytingar Erfiðlega hefur gengið að reka veitingahús þar sem Sólon var.

Vilja breyta Sóloni í gistihús

Farfuglar ses. vilja víkka út starfsemina • Samræmist ekki ákvæðum Meira

Fjölkjarna samfélög flókin í rekstri

Forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar harmar að Þingeyringar upplifi að ekki sé hlustað á þá innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. Hún telur vilja og svigrúm til að gera betur fyrir hendi. Morgunblaðið greindi frá því í gær að Þingeyringar væru… Meira

Sýknudómur staðfestur

Hæstiréttur staðfesti í gær sýknudóm yfir Steinþóri Einarssyni sem ákærður var fyrir að verða Tómasi Waagfjörð að bana á Ólafsfirði í október árið 2022. Staðfesti Hæstiréttur þar niðurstöðu Landsréttar en áður hafði Steinþór verið dæmdur í átta ára fangelsi í héraðsdómi Meira

Kvörtun Áfengiskaupmaður hefur kvartað til ESA vegna einokunarréttar ÁTVR á heildsöludreifingu tóbaks. Ákvörðunar ESA má vænta innan árs.

ESA skoðar tóbakssölu ÁTVR

Arnar í Sante kvartaði til eftirlitsstofnunar EFTA vegna einokunar ÁTVR á heildsöludreifingu tóbaks • Málið komið á dagskrá og svara að vænta innan árs • Segir hagnað af tóbaki niðurgreiða Vínbúðina Meira

Trúarbrögð Í sálmabókinni má sjá arabískan texta sálmsins, Þú sem ert guðslamb. Það hefur vakið nokkra athygli. Á arabísku þýðir Allah Guð.

Arabískur texti í íslensku sálmabókinni

Í nýrri sálmabók þjóðkirkjunnar er boðið upp á þá nýjung að frumtexti við erlend lög sem þýdd hafa verið á íslensku er birtur með íslenska sálminum. Kristján Valur Ingólfsson sem átti sæti í sálmabókarnefnd segir að frá því árið 2005 hafi verið… Meira

Dagmál Dagbjört Hákonardóttir (S) og Þorgrímur Sigmundsson (M).

Þyngra yfir þingi en oft hefur verið

Það er styttri þráðurinn í þingmönnum en oft er, segja þingmennirnir Dagbjört Hákonardóttir í Samfylkingu og Þorgrímur Sigmundsson í Miðflokki í viðtali Dagmála, sem birt er á mbl.is í dag. Þeim bar hins vegar ekki saman um hvort það væri styttra í tundrið hjá stjórnarþingmönnum eða stjórnarandstöðu Meira

Alþingi Það hefur verið skorpa í þinginu síðustu daga og oft meiri kátína í salnum. Hér fylgjast Grímur Grímsson (C), Eydís Ásbjörnsdóttir (S), Pawel Bartoszek (C) og Ingibjörg Davíðsdóttir (M) alvörugefin með þingræðum.

Veiðigjöldin komin til 2. umræðu

Leiðréttingar gerðar á frumvarpi ráðherra að tilmælum Skattsins • Meirihluti atvinnuveganefndar leggur til að miðað verði við 80% norsks makrílsverðs • Minnihlutinn átelur skort á upplýsingagjöf Meira

Þingstörfin Gert er ráð fyrir að 14 þingmenn verði erlendis á næstunni.

Margir þingmenn verða erlendis næstu daga og þingstörf enn í gangi

Fleiri úr meirihlutanum á leið til útlanda • Enn er eftir að afgreiða mörg mál Meira

Samtök Íbúar hafa stofnað vettvang um hagsmuni Breiðholtsbúa.

Stofna ný íbúasamtök í Breiðholti

Hvetja til umræðu um skipulagsmál • Tengjast ekki stjórnmálaflokkunum Meira

Opið á ný Eigendur The Drunk Rabbit hafa orðið fyrir miklu tjóni.

Biðu í sex vikur eftir starfsleyfi

„Við erum búin að bíða og bíða. Það er gleðiefni að ná loksins að opna,“ segir Arnar Þór Gíslason veitingamaður. Arnar rekur fjölda veitingastaða í miðborg Reykjavíkur. Nýverið tók félag hans yfir rekstur írska barsins The Drunk Rabbit í Austurstræti Meira

Lækningar Sérnám í sjúkrahúsgreinum fer að mestu fram á Landspítalanum.

Fleiri sérnámstækifæri fyrir lækna

Um 300 sérnámslæknar í námi innanlands • Framboð á fullu sérnámi tvöfaldast á undanförnum fimm árum • „Stórt skref í því að byggja upp sjálfbært og framtíðarþolið heilbrigðiskerfi“ Meira

Skemmtiferðaskip Hollenska skipið Zuiderdam siglir inn Skutulsfjörðinn í átt að Ísafjarðarbæ.

Vestfirðingar furða sig á stjórnvöldum

Hagsmunaaðilar á Vestfjörðum furða sig á vinnubrögðum stjórnvalda að undanförnu í málum sem snerta fjórðunginn, að sögn Sigríðar Ó. Kristjánsdóttur framkvæmdastjóra Vestfjarðastofu. Sigríður vísar þar til stóraukinnar gjaldheimtu, vegna móttöku… Meira

Von á margmenni í Borgarfirði

Fjórðungsmót Vesturlands haldið í Borgarnesi • Gert ráð fyrir vel á annað þúsund manns • Goðsagnakennt band treður upp • Útlit fyrir sterka gæðingakeppni • Hrossarækt fleygir fram Meira

Kosningaréttur kvenna 110 ára í dag

Mikill sigur í kvenréttindabaráttunni • Konur viðurkenndir löglegir borgarar í landinu • Baráttan ekki háð með mótmælagöngum • Kosningaréttur kvenna til jafns við karla 5 árum síðar Meira

Lyklaskipti Anna Guðný tekur við safnstjórn á Bustarfelli af Eyþóri.

Anna tekur við starfi safnstjóra

Anna Guðný Gröndal hefur verið ráðin safn­stjóri við Minja­safnið Bust­ar­felli í Hofsárdal í Vopnafirði. Safnið var opnað 1. júní og hefur Anna Guðný þegar hafið störf. Eyþór Bragi Bragason, sem áður var safn­stjóri Bust­ar­fells, verður hér eftir… Meira

Bókamenn Flutningur undirbúinn. Sr. Kristján Björnsson vígslubiskup heldur hér á Guðbrandsbiblíu og Skúli Sæland kirkjuvörður á kassa úr ÁTVR. Slíkir eru mátulega stórir og henta vel þegar flytja á bækur.

Ætla að bera bækurnar úr turninum

Flytja fágæt rit • 250 pappakassar í Skálholti • Safn geymt í kirkjuturni í tæp 60 ár • Gamlar biblíur, Grallarinn og Landnáma • Burðarfólk fær kaffi og kleinur • Vígslubiskup fór í Vínbúðina Meira

Sér golfvöll í bakgarðinum

Hafliði vill nýtt land fyrir útivist í Garðabæ • Fyrir ofan Austurkór Meira

110 ár frá konungs- tilskipun um fánann

Í dag eru liðin 110 ár frá því að Kristján 10. Danakonungur undirritaði konungstilskipun, þar sem núverandi hönnun íslenska fánans var fest í gildi. Var hönnun fánans lýst sem svo í tilskipuninni: „Heiðblár (Ultramarine-blár) með hvítum krossi … Meira

Villt Dregið verður úr slætti á völdum svæðum en þeim verður þó sinnt.

Grasflötum leyft að blómstra í Reykjavík

Reykjavíkurborg ætlar að draga úr slætti á völdum svæðum í borginni í sumar í þeim tilgangi að leyfa grasflötum að blómstra. Í tilkynningu frá borginni segir að þetta sé gert til að auka líffræðilega fjölbreytni og gera svæðin sjálfbærari en nú er Meira

Útilokað að sex bílastæði dugi

Íbúar í nágrenni Birkimels gagnrýna áform harðlega • Bílastæði í grenndinni þegar fullnýtt alla daga • Áformaðar lúxusíbúðir óásættanleg notkun á svæðinu • Áhyggjur af skuggavarpi yfir á næstu lóðir Meira

Embættið sem Úlfar afþakkaði auglýst

Embætti lögreglustjórans á Austurlandi hefur verið auglýst laust til umsóknar. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra bauð Úlfari Lúðvíkssyni, fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum, stöðuna Meira

Perluvinir Sergei Shoígu og Kim Jong-un ræddu samvinnu í gær.

Treysta böndin við Norður-Kóreu

Smiðir og hermenn frá Norður-Kóreu munu aðstoða við enduruppbyggingu eftir stríðsátök í Kúrsk-héraði í Rússlandi. Munu yfir fimm þúsund smiðir og hermenn verða sendir til landsins auk þúsund manna herliðs sem sér um að grafa upp og aftengja jarðsprengjur Meira

Teheran Hvítur reykur lá yfir höfuðborg Írans í gær eftir loftárásir Ísraelshers á skotmörk í nágrenni borgarinnar.

Íran hafnar afarkostum Trumps

Íranir skutu ofurhljóðfráum eldflaugum á Ísrael • Trump gefur ekkert upp um hvort Bandaríkin muni skerast í leikinn • Khamenei segir að Bandaríkin muni verða fyrir „óbætanlegum skaða“ Meira

Íbúi Martha Jesse í dyragættinni í íbúð sinni í Fuggerei. Hún hefur búið á svæðinu í sautján ár en eftirlaunin nægðu ekki fyrir venjulegri leiguíbúð.

Óbreytt leiga frá miðri sextándu öld

Kaupmaður stofnaði búsetukjarna með félagslegu húsnæði árið 1520 í Augsburg í Bæjaralandi • Íbúar greiða jafnvirði 126 króna á ári í leigu • Biðja bænir daglega fyrir velgjörðamönnum Meira

Balí Fjöldi ferðamanna kemst hvorki til né frá Balí vegna eldgoss.

Fjölda flugferða til Balí aflýst

Fjölda flugferða til og frá indónesísku eyjunni Balí var aflýst í gær vegna eldgoss í Lewotobi Laki-Laki-fjalli, sem er í austurhluta eyjaklasa Indónesíu. Eldgosið hófst á þriðjudag og var efsta viðbragðsstig almannavarna Indónesíu virkjað í kjölfarið Meira

Þingmenn Læknafélagið gagnrýnir að ekki standi til að lögfesta að sjúkratryggðir eigi rétt á að gangast undir aðgerðir hjá einkaaðilum hér á landi.

Tekist á um rétt til læknismeðferða

Stjórn Læknafélags Íslands gagnrýnir að ekki standi til að lögfesta að sjúkratryggðir skuli hafa sama rétt til að leita sér læknismeðferðar hér á landi hjá einkarekinni heilbrigðisþjónustu og þeir hafa til að leita læknismeðferðar í öðru aðildarríki … Meira

Hjónin Guðjón Sigmundsson og konan hans, Magnea Sigríður Guttormsdóttir, eru búin að reka Hernámssetrið að Hlöðum í Hvalfirði síðan 2011. Samhliða því reka þau kaffihúsið Hvíta fálkann.

Leyndarmálið á Hvíta fálkanum

Guðjón Sigmundsson, sem flestir þekkja sem Gauja litla, er búinn að reka Hernámssetrið að Hlöðum í Hvalfirði síðan 2011. Hernámssetrið er einkasafn og hefur Gaui safnað hlutum sem segja sögu hernámsins á Íslandi og þá sérstaklega í Hvalfirði. Meira

Þrengsli Agnes abbadís í herbergi sínu í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði.

Þurfa rými fyrir aldraðar og sjúkar systur

Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við stækkun Karmelklaustursins í Hafnarfirði í haust og verður verkið boðið út fljótlega. Nunnurnar hófu söfnun heima og erlendis fyrir um fjórum árum og gerðu kynningarmyndband, sem er á Youtube, til að vekja… Meira