Fréttir Miðvikudagur, 25. júní 2025

Veiðigjöldin enn verulega vanmetin

Uppfærð greining Deloitte á áhrifum hækkunar veiðigjalds á sjávarútveginn í heild og dæmi um áhrif á einstakar útgerðir sýna að afleiðingar frumvarpsins virðast enn verulega vanmetnar. Upphaflega var miðað við að veiðigjaldið færi úr 29 kr Meira

Árni Sverrisson

Veiðarnar lúti sömu lögmálum

Félag skipstjórnarmanna er þeirrar skoðunar að magn til strandveiða eigi að lúta sömu lögmálum og magn til veiða í almenna kvótakerfinu, aflamarkskerfinu og krókaaflamarkskerfinu, þar sem veiðiheimildum er úthlutað fyrir hvert skip Meira

Sigurður Hannesson

Evrópa „loksins vöknuð“ til varna

Íslenskur iðnaður vel í stakk búinn fyrir uppbygginguna Meira

Hildur Björnsdóttir

Fasteignaskattslækkun felld

Tvær áþekkar tillögur Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um lækkun á álagningarhlutfalli fasteignaskatta voru felldar af meirihluta Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkur í gær. Markmið tillagna minnihlutaflokkanna var að fasteignagjöld… Meira

Reykjavíkurborg Umtalsverðir fjárstyrkir eru greiddir af Reykjavíkurborg.

Fjárhagsaðstoð var 5,9 milljarðar

Útgjöld velferðarsviðs Reykjavíkurborgar • Alls fengust tæpir 1,5 milljarðar endurgreiddir • Útgjöld innan fjárheimilda • Framfærslustyrkir 3,2 milljarðar • Styrkþegum í félagslegu húsnæði fjölgar Meira

Björn kosinn í íþróttaráðið

Björn Gíslason borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins var í gær kjörinn í menningar- og íþróttaráð. Hafði hann sætaskipti við Kjartan Magnússon, sem áður sat í ráðinu, en Kjartan fór þess í stað í mannréttindaráð Meira

Kastljós Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sakaði stjórnarandstöðu um málflutning í „falsfréttastíl“, sem greiðir ekki fyrir sátt um þinglok.

Orð Kristrúnar auka á ósættið

Þingflokksformenn stjórnarandstöðunnar á Alþingi hófu þingfund í gær á því að krefjast þess að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra drægi orð sín til baka um að málflutningur stjórnarandstæðinga í veiðigjaldamálinu væri í „falsfréttastíl“ Meira

Fjölmiðlar Blaðamenn bíða á Bessastöðum árið 2011 eftir yfirlýsingu forseta um Icesave. Bæði blaðamönnum og fréttamiðlum hefur fækkað síðan.

Fjölmiðlastyrkir óbreyttir úr nefnd

Hámarksstyrkir lækki • Búbót héraðsmiðla sögð yfirvarp Meira

Rafstrengir Flutningaskip með rafstrengina lagðist að bryggju í Eyjum í gær. Þeir bíða nú þess að verða lagðir.

Leggja tvo rafstrengi til Vestmannaeyja

Hafist verður handa í byrjun júlí • Verklok með haustinu Meira

Alþingi Njáll Trausti Friðbertsson er fyrsti flutningsmaður.

Grunur um laun umfram fjárheimildir

Skýrslubeiðni til fjármála- og efnahagsráðherra frá tíu þingmönnum Meira

Katrín S. Óladóttir

Nafnbirting fælir umsækjendur frá

„Löggjöfina þarf að laga og fara í gegnum þetta lið fyrir lið. Einstaklingi þarf að vera frjálst að sækja um þá stöðu sem hann langar til, án þess að það hafi áhrif á störf hans á núverandi vinnustað,“ segir Katrín Óladóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hagvangs Meira

Göngustígur Íbúar kalla eftir þrengingu umferðar um götuna.

Barnið liggur enn á spítala

Barn sem farið var með á bráðamóttöku eftir að ekið var á það í Reykjavík á fimmtudag í síðustu viku liggur enn á spítala. Það er ekki í lífshættu og er á batavegi. Þetta kemur í fram í samtali Morgunblaðsins við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu Meira

Gestur Matt Damon er hér við tökur á kvikmyndinni Ódysseifskviðu.

Matt Damon á Möðrudalsöræfum

Tökur á Ódysseifskviðu víða um land • Strangar kröfur gerðar til aukaleikara Meira

Hlíðar Veitur hyggjast endurnýja lagnir við Lönguhlíð og neðri hluta Drápuhlíðar á næstunni. Göngustígar verða báðum megin við götuna í Drápuhlíð og ný hönnun verður einnig notuð í nærliggjandi götum í framtíðinni.

Auka öryggi gangandi og hjólandi

Lönguhlíð verður breytt í borgargötu með auknu öryggi á göngu- og hjólastígum • Bætt aðgengi að strætóstöð og bílastæðum fækkað • Lagnir endurnýjaðar • Hluti Drápuhlíðar endurgerður Meira

NATO Trump mætir hér til hátíðarkvöldverðar Hollandskonungs.

Vilja tryggja friðinn í Evrópu

Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins fer fram í Haag í Hollandi í dag, og héldu þjóðarleiðtogar bandalagsríkjanna til borgarinnar í gær til þess að sækja hátíðarkvöldverð í boði Vilhjálms Alexanders Hollandskonungs þar sem fundurinn var formlega settur Meira

Vopnahlé Stjórnvöld í Íran efndu til sigurhátíðar í miðborg Teheran til þess að fagna vopnahléinu í gær.

Vopnahléið hélt

Bæði Ísrael og Íran lýsa yfir sigri í átökunum • Íranar sækjast eftir samkomulagi um kjarnorkuáætlun sína Meira

Landamæri Taílenskir hermenn fylgja nemendum á milli landanna.

Aukin spenna í Suðaustur-Asíu

Taílenski herinn lokaði fyrir umferð fólks um landleiðina til Kambódíu í gær. Tugir ferðamanna strönduðu á helstu eftirlitsstöð Taílands á landamærum ríkjanna. Taíland hefur meinað fólki að fara landleiðina yfir landamærin í öllum sjö héröðum landsins sem liggja að þeim Meira

Varnir Sigurður Hannesson sótti fundinn en meðal þeirra sem mættu voru Selenskí, Ursula von der Leyen framkvæmdastjóri ESB og Mark Rutte.

Íslenskur iðnaður tilbúinn að svara kallinu

Iðnaðurinn á Íslandi og í Evrópu er tilbúinn að svara kalli um aukna hergagnaframleiðslu og uppbyggingu varnartengdra innviða meðal aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO). Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, í samtali við Morgunblaðið Meira

Keppendurnir frá Íslandi Aftari röð frá vinstri: María Ingimundardóttir, Simona Vareikaité, Kristín Jakobsdóttir, Fjóla Kristín Traustadóttir, Helga Helgadóttir, Linda Helgadóttir, Vikar Karl Sigurjónsson og Kristjana Hildur Gunnarsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Ásdís Guðnadóttir, Árdís Lára Gísladóttir, Ásta Katrín Helgadóttir og Jóhanna Júlía Júlíusdóttir.

Kappið fyrnist ekki með aldrinum

Kristjana Hildur Gunnarsdóttir varð í öðru sæti annað árið í röð og fékk silfurverðlaun í flokki 50-54 ára á heimsmeistaramótinu í hyrox í Chicago í Bandaríkjunum um miðjan mánuðinn. Ásdís Guðnadóttir og María Ingimundardóttir urðu í þriðja sæti í… Meira