Fréttir Miðvikudagur, 16. júlí 2025

Hafið verði þjóðbraut á ný

Skipaður verður starfshópur á næstunni vegna rekstrarumhverfis strandsiglinga, þar sem farið verður yfir rekstrarumhverfið sjálft og forsendur rekstrar. Eyjólfur Ármannsson innviða­ráðherra segir hópinn munu kalla til sín þá sem hagsmuna eiga að gæta og litið verði til sjónarmiða þeirra Meira

Þreyttir á ólátum á Austurvelli

Veitingamenn við Austurvöll eru langþreyttir á ónæði sem menn í annarlegu ástandi valda en þeir halda gjarnan til við bekkina á Austurvelli, nálægt styttunni af Jóni Sigurðssyni. Á góðviðrisdögum hópast borgarbúar á svæðið og nýta tækifærið til að sitja úti í góða veðrinu eins og þekkt er Meira

Vífilsstaðir Sigurður Magnússon lét reisa húsið veturinn 1919-1920 og fékk Guðjón Samúelsson til að teikna það.

Mikil óvissa ríkir um framtíð hússins

Yfirlæknisbústaðurinn á Vífilsstöðum stendur enn auður Meira

Kjötborg Bræðurnir Gunnar Halldór og Kristján Aðalbjörn gleðjast.

Loks sér fyrir endann á langri bið bræðranna

Reykjavíkurborg hyggst taka upp bílastæðakort fyrir rekstraraðila Meira

Uppsagnir Sex flugumferðarstjórum hefur nú verið verið sagt upp.

Einum sagt upp til viðbótar

Einum flugumferðarstjóra til viðbótar hefur verið sagt upp hjá Isavia ANS vegna brota á reglum um skráningu á tímum um setu í vinnustöðu. Greint var frá uppsögnum fimm flugumferðarstjóra í maí vegna sömu brota Meira

Ellefu farist í bifhjólaslysum á áratug

Árið 2018 hið eina slysalausa • Þrír biðu bana árið 2020 Meira

Sjálfstæðishetjan innan um slagsmál og ólæti

Sömu einstaklingar ítrekað til vandræða • Lausn ekki í sjónmáli Meira

Framkvæmdir Vinna hefur staðið yfir á Korputúni frá því snemma í vor, en svæðið er í landi Blikastaða sem sjá má ofarlega fyrir miðri mynd.

Framkvæmdir eru í fullum gangi

Reitir og Iceland byggja verslunar- og þjónustuhúsnæði • Jysk og Bónusverslanir á staðnum Meira

Hitabylgja Landsmenn hafa notið góðviðrisins undanfarna daga.

Staðar- og dægurhitamet slegin

Hitabylgjan sem gengur nú yfir landið hélt áfram að leika við landsmenn í gær. Víða fór hiti yfir 20 gráður og má búast við svipuðum hitatölum út vikuna á Norður- og Austurlandi. Í gær mældist mestur hiti á veðurstöð Veðurstofu Íslands við Kröflu þar sem hiti fór upp í 26,4 gráður Meira

Hygge Eigendur hafa beðið í 239 daga eftir að fá að opna á Barónsstíg.

Eigendur Hygge fengu áheyrn

Veitingamenn funduðu með borgarstjóra og embættismönnum vegna óánægju með samskipti við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur • Málefni Hygge bakarís rædd • Úttekt gerð á heilbrigðiseftirlitinu Meira

Tölfræði Karlar voru að meðaltali með hærri tekjur en konur.

Meðaltekjur tíu milljónir á ári

Heildartekjur voru að meðaltali 831 þúsund krónur á mánuði í fyrra Meira

Árskógar Formaður húsfélagsins segir að samskipti við Reykjavíkurborg um framkvæmdirnar hafi verið ömurleg og að mótmælin haldi áfram.

Íbúar Árskóga mótmæla framkvæmdum

Íbúar við Árskóga í Breiðholti mótmæltu í gær framkvæmdum við heimili sín. Framkvæmdirnar snúa að göngustíg sem verið er að leggja upp við heimili íbúanna og mun ná frá Árskógum 1 og alveg að græna vöruhúsinu við Álfabakka 2 Meira

Sjóflutningar Ms. Selfoss hefur verið notaður í strandferðum Eimskips. Nú leggjast þær af, jafnhliða því sem verksmiðju PCC á Húsavík er lokað.

Ráðherrann vill strandsiglingar

Hafið sé þjóðbraut flutninga • Starfshópur greini stöðuna og komi með tillögur síðar á árinu • Skilyrði séu sköpuð • Minna álag á vegi og dregið verði úr umhverfisáhrifum • Siglingar séu reglulegar Meira

Flóttamenn Þúsundir Afgana voru fluttar leynilega til Bretlands vegna gagnaleka sem stofnaði lífi þeirra í hættu.

Fluttir leynilega til Bretlands

Upplýsingum um þúsundir Afgana lekið og lífi þeirra stofnað í hættu • Áætlunin fyrst gerð opinber í gær • Þagnarskylda þingmanna og fjölmiðla • Varnarmálaráðherra baðst afsökunar á gagnalekanum Meira

Gervigreind Margir nota gervigreind til þess að búa til falsaðar myndir frá helförinni. Margir virðast falla fyrir því á samfélagsmiðlinum Facebook.

Láta Auschwitz líta út sem ævintýraland

Myndin hér til hliðar sýnir gamla mynd af fallegri, hrokkinhærðri stúlku á þríhjóli og samkvæmt færslunni heitir stúlkan Hannelore Kaufmann. Kaufmann er þriggja ára gömul og er frá Berlín. Hún lést í útrýmingarbúðunum í Auschwitz Meira

Tálknafjörður Starfsmenn Arnardals sf. sinntu vegaframkvæmdum í sumarblíðunni á Vestfjörðum í gær. Arnardalur er fjölskyldufyrirtæki.

Sverrir hvergi nærri hættur að fylla í holur

„Ég hef gaman af þessari vinnu, annars væri ég ekki að þessu,“ segir Sverrir Þórólfsson, stofnandi fjölskyldufyrirtækisins Arnardals sf. Sverrir á 75 ára afmæli í dag en 48 ár eru síðan hann stofnaði fyrirtækið sem hann segir að sé líklega elsta verktakafyrirtæki á landinu Meira