Fyrri kappræður forsetaefna háðar í kvöld

Fátt vekur nú meiri spennu í Bandaríkjunum þetta fimmtudagskvöld en fyrirhuguð kappræða milli þeirra Donalds Trumps og Joes Bidens, sem báðir hafa gegnt embætti forseta þessa mikla lands og reyna nú enn.

Donald Trump hafði þrýst mjög á um að kappræðurnar færu fram og Joe Biden tók þeim kröfum lengi vel illa. Trump sagðist þá mundu samþykkja hvaða fyrirkomulag sem Biden krefðist! Skilyrðin, sem sett voru af hálfu Bidens, voru að kappræðurnar stæðu í 90 mínútur samtals, og þegar forsetaefnin hefðu lokið fárra mínútna máli sínu, í hvert eitt sinn, þá yrði slökkt á tæki hans, til þess að tryggja að sá gæti ekki gripið fram í fyrir þeim, sem þá hefði orðið. Þriðja skilyrðið var að báðir spyrlarnir og um leið stjórnendur kappræðunnar kæmu frá CNN, sem lengi hefur lagt taumlitla fæð á Donald Trump og hvergi sparað sig! Þrátt fyrir að dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, í umboði forsetans, hafi stofnað til óteljandi málaferla gegn keppanda Bidens

...