„Það er almennt mikil reiði í lögreglumönnum vegna stofnanasamnings sem var gerður árið 2021. Þeim finnst hann ekki hafa verið virkjaður nægjanlega mikið og að ekki hafi verið staðið við hann,” segir Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna.
Á vaktinni Nærri 70% þeirra sem þátt tóku felldu kjarasamninginn.
Á vaktinni Nærri 70% þeirra sem þátt tóku felldu kjarasamninginn. — Morgunblaðið/Eggert

Viktoría Benný Kjartansdóttir
viktoria@mbl.is

„Það er almennt mikil reiði í lögreglumönnum vegna stofnanasamnings sem var gerður árið 2021. Þeim finnst hann ekki hafa verið virkjaður nægjanlega mikið og að ekki hafi verið staðið við hann,” segir Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, í samtali við Morgunblaðið, en lögreglumenn kolfelldu nýjan kjarasamning milli landssambandsins og íslenska ríkisins.

Alls tóku 82,8% félagsmanna þátt í atkvæðagreiðslunni, 67,91% þeirra sögðu nei en 30,9% já. Á kjörskrá voru 809 lögreglumenn.

Að sögn Fjölnis hafa lögreglumenn verið að bera saman laun sín við landamæraverði og tollverði. Telja þeir sig ekki fá sambærileg laun. Lögreglumenn eru einnig ósáttir við að ekki sé greitt fyrir persónuleg atriði eins og menntun og álag, en stofnanasamningurinn átti einmitt að tryggja það.

Þá segir

...