Ragnar Stefánsson, jarðskjálftafræðingur, lést á Landspítalanum í gær, 85 ára að aldri.
Ragnar var fæddur í Reykjavík árið 1938 og var sonur Rósu Kristjánsdóttur og Stefáns Bjarnasonar.
Ragnar var um árabil einn helsti jarðskjálftafræðingur Íslands. Fékk hann meðal annars Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2022 fyrir bókina Hvenær kemur sá stóri? og fjallar hún um jarðskjálftarannsóknir.
Gekk Ragnar gjarnan undir viðurnefninu „Ragnar skjálfti“ og var það skírskotun í starfsvettvang hans.
Ragnar stundaði nám við Uppsala-háskóla í Svíþjóð og lauk Fil. kand.-prófi (B.Sc.) í stærðfræði og eðlisfræði 1961 og Fil. kand.-prófi í jarðeðlisfræði 1962 og árið 1966 Fil.lic.-prófi (Ph.D.) í jarðskjálftafræði.
Árin 1962–1963 og frá 1966 til 2003 var hann forstöðumaður jarðeðlissviðs Veðurstofu Íslands og
...