Birta Hannesdóttir
birta@mbl.is
Hópur íbúa í Grafarvogi er ósáttur við áform borgarinnar um þéttingu byggðar í hverfinu. Einar Þorsteinsson borgarstjóri kynnti á blaðamannafundi á miðvikudag áform um nýtingu lóða í helstu úthverfum borgarinnar. Eiga hátt í 500 íbúðir að rísa í Grafarvoginum á næstu árum, ef tillögur Einars og borgarmeirihlutans ganga eftir.
Meðal áforma borgarinnar er að byggja fjölbýlishús á lóð við Sóleyjarima/Smárarima með 65-96 íbúðum.
Margir íbúar hverfisins hafa áhyggjur af þessum áformum og telja að borgin sé að skerða aðgang að útivistarsvæðum og gæti byggðin þrengt enn frekar að leik- og grunnskólum í hverfinu sem séu þegar yfirfullir.
Nýlega var hleypt af stað undirskriftasöfnun til að mótmæla uppbyggingunni en meðal íbúa er helst andstaða gegn skipulagslýsingu borgarinnar og þeir segja að hún sé á skjön við núverandi
...