Aron Elí Örvarsson fæddist í Reykjavík 6. nóvember 2018. Hann lést á Barnaspítala Hringsins 6. júní 2024.

Foreldrar hans eru Emilía Magnúsdóttir, f. 27. júlí 1993, og Örvar Ólafsson, f. 21. september 1993. Systir hans er Aþena Ellen Örvarsdóttir, f. 1. apríl 2022.

Jarðarförin fór fram í kyrrþey frá Grafarvogskirkju.

Elsku Aron Elí.
Þú varst aðeins rúmlega tveggja mánaða þegar við fengum þær fréttir að tíminn sem við fengjum með þér yrði mjög stuttur.
Engan hefði getað grunað þá hvað þú áttir eftir að sýna mikinn styrk og kenna okkur margt.
Þú varst svo miklu sterkari en við áttum von á og komst öllum á óvart aftur og aftur. Aðeins sjö mánaða komst þú í gegnum mjög erfið veikindi, í einu utanlandsferðinni þinni, á Spáni. Svo sigraðir þú hverja flensuna á fætur annarri og þar á meðal covid tvisvar.

...