Elínborg Una Einarsdóttir
elinborg@mbl.is
Nemendum sem hefja grunnnám í lyfjafræði hefur fækkað um 36% síðasta áratuginn og telur Lyfjastofnun Íslands að þróunin sé áhyggjuefni. Þá eru aðeins 37% starfsfólks apóteka á landinu faglærð og er hlutfallið lægra en í nágrannalöndunum.
Til að bregðast við stöðunni og skorti á fagmenntuðu starfsfólki í lyfjabúðum leggur stofnunin meðal annars til breytingar á lyfjafræðináminu í Háskóla Íslands sem myndi fela í sér að einhver starfsréttindi fáist strax að loknu BS-námi.
Formaður Lyfjafræðingafélags Íslands, Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir, tekur undir að fækkun lyfjafræðinga sem útskrifast úr háskólanum sé áhyggjuefni og fagnar tillögu Lyfjastofnunar. Hún segir að vinna við breytingar á náminu sé þegar hafin og telur að um sé að ræða góðan hvata fyrir nemendur til að halda námi áfram.
Sigurbjörg telur þó að
...