Sigríður Hannesdóttir, leikkona og stofnandi Brúðubílsins, er látin 92 ára að aldri.
Sigríður var fædd 13. mars 1932 og sleit barnsskónum í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Hannes Sveinsson, verkamaður og Jóhanna Pétursdóttir, verkakona.
Á unglingsárunum lærði Sigríður hjá Ævari Kvaran áður en hún hóf nám við Leiklistarskólann. Eftir að hafa klárað leiklistarnámið flutti Sigríður til Englands þar sem hún bjó og starfaði í eitt ár.
Þegar hún sneri til baka til Íslands kynntist hún Ottó Erni Péturssyni, starfsmanni ameríska sendiráðsins í Reykjavík, en þau gengu í hjónaband árið 1957.
Sigríður Hannesdóttir söng gamanvísur í samkomuhúsum víðsvegar um landið áður en hún stofnaði Brúðubílinn árið 1976 ásamt Jóni Guðmundssyni. Saman lögðu þau af stað í sína fyrstu ferð á Lödu-skutbíl sem Sigríður hafði fjárfest í.
...