Á dögunum var tilkynnt um útgáfudag kvikmyndarinnar Downtown Abbey: A New Era.
Crawley-fjölskyldan hefur hlotið miklar vinsældir.
Crawley-fjölskyldan hefur hlotið miklar vinsældir.

KVIKMYNDIR Á dögunum var tilkynnt um útgáfudag kvikmyndarinnar Downtown Abbey: A New Era. Hún mun koma út 12. september 2025 og er sú þriðja í röðinni af þessum vinsælu framhaldsmyndum. Downtown Abbey voru upprunalega sjónvarpsþættir og sagan segir frá lífi fólks á Englandi í byrjun 20. aldar. Áhorfendur fá að fylgjast með Crawley-fjölskyldunni og lífi hennar í Downtown Abbey. Þau lenda í alls kyns skemmtilegum uppákomum og flækjum, en sjónvarpsþættirnir náðu gríðarlegum vinsældum. Kvikmyndirnar hafa einnig fallið í kramið hjá aðdáendum og það verður áhugavert að fylgjast með því hvort þriðja kvikmyndin verði jafn vinsæl.