Vilhjálmur Bretaprins mætti nýverið á tónleika Taylor Swift ásamt tveimur börnum sínum.
Taylor Swift treður upp í London
Taylor Swift treður upp í London

VINIR Vilhjálmur Bretaprins mætti nýverið á tónleika Taylor Swift ásamt tveimur börnum sínum. Swift hélt tónleika í London en þeir eru hluti af Eras-tónleikaferðalagi sem stendur nú yfir, þar sem hún treður upp víða um heim. Heimildir herma að prinsinn sé mikill aðdáandi söngkonunnar frægu og hafi notið tónleikanna líkt og börn hans. Heimildir herma einnig að Taylor Swift og Vilhjálmur Bretaprins séu gamlir vinir, en þau kynntust við galakvöldverð í London árið 2013. Síðan þá hafi þau haldið sambandi og séu enn í dag góðir vinir.