Pétur Sigurðsson fæddist í Reykjavík 10. apríl 1969. Hann lést eftir hetjulega baráttu í kjölfar vinnuslyss á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 23. júní 2024 í faðmi fjölskyldunnar.

Foreldrar hans eru þau Sigurður Birgir Björnsson, f. 29. ágúst 1934, d. 4. júlí 1997, og Erla Pétursdóttir, f. 5. febrúar 1943. Pétur á tvær yngri systur, Ingu Birnu, f. 5. júlí 1974, og Sigrúnu, f. 28. ágúst 1979.

Hinn 22. ágúst 1992 kvæntist Pétur Gunnhildi Björnsdóttur grunnskólakennara, f. 25. maí 1970. Hún er dóttir sr. Björns Jónssonar, f. 7. október 1927, d. 20. desember 2011, og Sjafnar Pálfríðar Jónsdóttur, f. 14. nóvember 1934. Börn þeirra eru: 1) Aron Ýmir knattspyrnuþjálfari, f. 30. janúar 1990, maki Inga Þóra Lárusdóttir. Börn þeirra eru Björn Leó, Hekla Björk og Tanja Björk. 2) Erla Karitas, f. 20. mars 1992, doktorsnemi í verkfræði, maki

...