Ég var búin að vera með virk einkenni í heilt ár en það hvarflaði ekki að neinum að ég væri með krabbamein.
Eva Gunnarsdóttir
Eva Gunnarsdóttir

Þegar ég var fertug fékk ég óvænt ristilkrabbamein. Ég var þá búsett í London og fór í gegnum meðferð á Royal Free Hospital í Hampstead í Norður-London. Krabbameinið var aldrei greint þar sem ég var mörgum áratugum undir meðalaldri og passaði auk þess ekki við neina þekkta

áhættuþætti fyrir ristilkrabbamein.
Það var ekki fyrr en ég fór mjög veik á slysavarðstofu spítalans með ristilstíflu að æxlið kom í ljós og það þurfti að framkvæma neyðaraðgerð samdægurs. Fjórum dögum síðar þurfti að endurtaka aðgerðina og setja upp tímabundið stóma sem var síðan fjarlægt ári síðar.
Krabbameinið reyndist staðbundið en engu að síður var mælt með lyfjameðferð út af því hversu ung ég var og af því að líkurnar á
endurkomu ristilkrabbameins er hærri í neyðartilvikum.
Ég var búin að vera með virk einkenni í heilt ár en það hvarflaði ekki að neinum að ég væri með krabbamein. Sérfræðingar nefndu hluti

...