Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is

„Þessi þjónusta er gríðarlega mikið nýtt af íbúum og mikilvægt að hún sé fyrir hendi. Það er það sem við viljum tryggja og ég tel að þetta sé skynsamleg leið,” segir Orri Hlöðversson, bæjarfulltrúi í Kópavogi og stjórnarmaður í Sorpu.

Ákveðið hefur verið að fresta lokun endurvinnslustöðvar Sorpu við Dalveg um eitt ár. Stjórn Sorpu hefur samþykkt drög að samkomulagi þessa efnis og er nú stefnt að því að stöðin verði opin fram til 1. september 2025. Enn á þó eftir að leggja samkomulagið fyrir fund bæjarráðs Kópavogs og verður það gert á fimmtudag.

Þungaflutningar ekki æskilegir

Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu hefur undirbúningsvinna vegna byggingar nýrrar endurvinnslustöðvar Sorpu í Kópavogi frestast. Niðurstöðu starfshóps sem vinnur að því að finna staðsetningu hefur seinkað og niðurstöðu ekki að vænta fyrr

...