![Leita verndar á Íslandi Fólki í búsetuúrræðum á vegum Vinnumálastofnunar hefur fækkað síðustu mánuði. Umsóknum um vernd hefur fækkað.](https://c.arvakur.is/m2/IVKPfZfKPYmZbTEgoACl11is2GI=/fit-in/1024x0/myndir/gagnasafn/2024/07/02/j2-6b_1356416.jpg)
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Umsækjendum um alþjóðlega vernd sem eru í búsetuúrræðum á vegum Vinnumálastofnunar hefur fækkað úr 1.893 frá fyrri hluta aprílmánaðar í 1.549. Það samsvarar um 18% fækkun.
Þetta kemur fram í svari frá Vinnumálastofnun.
Þegar Morgunblaðið lagði fram fyrirspurn um málið í byrjun apríl voru um 1.050 umsækjendur í eigin húsnæði eða hjá vinum og vandamönnum. Af þeim voru hér um bil 100 í úrræðum á vegum ríkislögreglustjóra vegna fyrirhugaðrar brottfarar.
Nú eru hins vegar um 516 umsækjendur sem búa í eigin húsnæði eða hjá vinum og vandamönnum og hefur því fækkað um nærri helming síðan í byrjun apríl. Af þeim eru hér um bil 35 í úrræðum á vegum ríkislögreglustjóra vegna fyrirhugaðrar brottfarar, eða um þrefalt færri en í byrjun apríl.
Sjálfviljug heimför
...