Umdeilt útspil Emmanuel Macrons Frakklandsforseta um að boða til kosninga eftir afhroð í kosningum Evrópubandalagsins gæti ýtt honum út af hinu pólitíska sviði ef hann nær ekki samstöðu með vinstrimönnum.
Macron Frakklandsforseti vonast til að andstæðingar Þjóðfylkingarflokksins greiði atkvæði taktískt í seinni umferðinni sl. sunnudag.
Macron Frakklandsforseti vonast til að andstæðingar Þjóðfylkingarflokksins greiði atkvæði taktískt í seinni umferðinni sl. sunnudag. — AFP/Yara Nardi

Dóra Ósk Halldórsdóttir
doraosk@mbl.is

Umdeilt útspil Emmanuel Macrons Frakklandsforseta um að boða til kosninga eftir afhroð í kosningum Evrópubandalagsins gæti ýtt honum út af hinu pólitíska sviði ef hann nær ekki samstöðu með vinstrimönnum.

Í gær var ljóst að Þjóðfylkingarflokkur Marie Le Pen fékk flest atkvæði í fyrstu umferð þingkosninganna, eða 33%, en vinstri flokkurinn Nýja alþýðufylkingin hlaut 28%.

Miðjubandalag Macrons var talsvert langt á eftir með 20% atkvæða.

Staðan er þó enn flókin og ekki ljóst að Þjóðfylkingarflokkurinn geti myndað stjórn. Hinn 28 ára gamli Jordan Bardella er leiðtogi flokksins og hann hefur sagt í fjölmiðlum að hann muni aðeins verða forsætisráðherra ef flokkurinn nær hreinum meirihluta. Svo það gangi eftir þarf hann 289 þingsæti af 577 sætum. Flestar kosningaspár telja að flokkurinn muni ekki ná þeim þingsætafjölda

...