![Selfoss Á undanförnum tíu árum hafa risið hátt í 2. 000 íbúðir í sveitarfélaginu Árborg.](https://c.arvakur.is/m2/AIn56xsDgqtYGPux6CZvUIKx2-g=/fit-in/1024x0/myndir/gagnasafn/2024/07/03/j3-10a_1356471.jpg)
Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
Mikil uppbygging hefur verið í sveitarfélögunum fyrir austan fjall síðastliðin tíu ár, þ.e. í Árborg, Hveragerði og Ölfusi. Alls hafa verið reistar hátt í 2.700 íbúðir á þessum tíma og íbúum hefur fjölgað um 6.300 manns.
Mest hefur verið byggt af einbýlishúsum, par- og raðhúsum. Bygging íbúða í fjölbýlishúsum hefur svo aukist á undanförnum árum. Í Árborg er búið að byggja 1.500 - 2.000 íbúðir og íbúum hefur fjölgað um 4.300, eða 35%. Í Hveragerði er búið að byggja 376 íbúðir og íbúum hefur fjölgað um 1.000 eða um 42%. Í Þorlákshöfn er búið að byggja 348 íbúðir og íbúum hefur fjölgað um 1.000 eða um 30% frá 2019.
Reynt hefur á Árborg
Í Árborg hefur mest verið byggt af einbýlis-, par- og raðhúsum en á síðustu árum hefur eftirspurn eftir íbúðum í fjölbýli aukist.
Bragi
...