Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
Jaðrar þess hrauns sem rann í síðustu jarðeldum, norðaustur af Fagradalsfjalli, eru nú 2,7 kílómetra frá Reykjanesbraut þar sem þeir liggja nyrst. Fari svo að það gjósi aftur í grennd við þá gíga sem lengst voru virkir í nýliðnu gosi gæti glóandi hraunið náð Reykjanesbraut á innan við degi eða jafnvel enn skemmri tíma.
Þetta segir Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands. Ef Reykjanesbrautin lokist þurfi viðbragðsaðilar að hugsa fyrir því hvernig koma eigi umferð til Keflavíkurflugvallar. Reykjavíkurflugvöllur beri engan veginn þá flugumferð.
„Við getum ekki fullyrt hvort gosstöðvarnar eru að færast norðar, en það eru vísbendingar um að virknin sé að færast norður fyrir vatnaskil. Ef gossprungan opnast á
...