Arsenal fór upp í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla með því að leggja Tottenham Hot­spur, 1:0, á samnefndum leikvangi síðarnefnda liðsins í Norður-Lundúnaslag í 4. umferð deildarinnar í gær.

Newcastle United vann Wolves á útivelli, 2:1, í gær og er með jafnmörg stig og Arsenal, tíu, í þriðja sæti. Liverpool, sem er í fjórða sæti með níu stig, missteig sig á laugardag. Nottingham Forest vann þá 1:0, sem var fyrsti sigur Forest á Anfield í 55 ár. » 27