Stjarnan vann Tindastól, 2:1, og hafnaði þar með í sjöunda sæti Bestu deildar kvenna í fótbolta þegar lokaumferð neðri hluta deildarinnar var leikin á laugardag. Bæði lið voru sloppin við fall og Tindastóll þurfti tveggja marka sigur til að ná sjöunda sætinu.

Hrefna Jónsdóttir skoraði sigurmarkið í opnum og fjörugum leik í byrjun síðari hálfleiks.

Keflavík lagði Fylki, 4:1, í Árbænum í uppgjöri botnliðanna tveggja sem bæði voru fallin fyrir umferðina en Keflavík fór með þessu upp fyrir Fylki og endaði í níunda sætinu. FHL og Fram taka sæti þeirra í deildinni.

Saorla Miller var í aðalhlutverki hjá Keflavík en hún skoraði tvö mörk og lagði upp eitt fyrir Sigurbjörgu Diljá Gunnarsdóttur.

...