Íbúðir Í fyrra sóttu alls 516 fyrstu kaupendur um hlutdeildarlán.
Íbúðir Í fyrra sóttu alls 516 fyrstu kaupendur um hlutdeildarlán. — Morgunblaðið/Eggert

Ekki hefur verið opnað fyrir umsóknir og úthlutun hlutdeildarlána þar sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun bíður enn eftir því að fá aukið fjármagn hjá ríkissjóði til að geta afgreitt lánsumsóknir.

HMS lokaði tímabundið fyrir umsóknir í maí sl. þar sem lánsfjárheimildir ársins til veitingar lánanna voru þá fullnýttar. Alþingi samþykkti svo í júní að hækka heimildina úr þremur milljörðum í fjóra svo hægt yrði að hefja afgreiðslu lána á nýjan leik.

...