Hinn átta ára gamli Finnur Viðarsson sló í gegn í Skemmtilegri leiðinni heim fyrir helgi en þar lýsti hann því yfir að hann ætti erfitt með að trúa því að Regína væri konan á plakatinu fyrir utan hljóðverið

Hinn átta ára gamli Finnur Viðarsson sló í gegn í Skemmtilegri leiðinni heim fyrir helgi en þar lýsti hann því yfir að hann ætti erfitt með að trúa því að Regína væri konan á plakatinu fyrir utan hljóðverið. „Þú varst, tæknilega séð, miklu hávaxnari, með mikið „meiköpp“ og þú leist út fyrir að vera yngri,“ sagði Finnur við Regínu en hann tók fram að hann væri alls ekki að segja að hún liti illa út. Hann deildi einnig draumum sínum um framtíðina í þættinum en hann vill smíða geimflaugar þegar hann verður stór og flytja til Tene.

Nánar á K100.is.