Gegnum tíðina hefur maður nokkrum sinnum varað lesendur við því að hefja sambúð með því að „rugla saman reitum“ með ei-i. Fleirtalan reytur, með ypsiloni, merkir eigur, ýmislegt dót, sem bæði færa þá í búið og rugla þannig saman…

Gegnum tíðina hefur maður nokkrum sinnum varað lesendur við því að hefja sambúð með því að „rugla saman reitum“ með ei-i. Fleirtalan reytur, með ypsiloni, merkir eigur, ýmislegt dót, sem bæði færa þá í búið og rugla þannig saman reytum. Auðvitað getur maður ekki tryggt að þetta endist en rétt stafsetning hjálpar alltaf.