Kvikmynd sem byggist á tölvuleiknum The Sims er í bígerð. Þetta staðfestir Margot Robbie, en framleiðslufyrirtæki hennar, LuckyChap, er viðriðið myndina. Electronic Arts (EA), tölvuleikjafyrirtækið á bak við leikinn geysivinsæla, hefur einnig…

Kvikmynd sem byggist á tölvuleiknum The Sims er í bígerð. Þetta staðfestir Margot Robbie, en framleiðslufyrirtæki hennar, LuckyChap, er viðriðið myndina.

Electronic Arts (EA), tölvuleikjafyrirtækið á bak við leikinn geysivinsæla, hefur einnig staðfest fréttirnar en það hyggst vinna með AMAZON MGM Studios að myndinni og staðfestir einnig að Kate Herron, leikstjóri Marvel-þáttanna um Loka, muni koma að henni. Þá fagnar leikurinn einnig 25 ára afmæli á næsta ári og því þykir líklegt að kvikmyndin verði liður í afmælisfögnuðinum.