Franski knattspyrnumaðurinn Anthony Martial er genginn til liðs við AEK í Grikklandi en hann var samningslaus eftir að hafa yfirgefið Manchester United í sumar

Franski knattspyrnumaðurinn Anthony Martial er genginn til liðs við AEK í Grikklandi en hann var samningslaus eftir að hafa yfirgefið Manchester United í sumar. Martial, sem er 28 ára, lék með United í níu ár.

Knattspyrnumaðurinn Adrien Rabiot er genginn til liðs við Marseille og mun leika þar næstu tvö árin. Miðjumaðurinn, sem er 29 ára gamall, yfirgaf Juventus á frjálsri sölu í sumar. Rabiot lék í fimm ár með Juventus en þar áður spilaði hann í heimalandinu fyrir Paris Saint-Germain, þar sem hann vann sex meistaratitla með liðinu, og Toulouse. Hann hefur leikið 48 landsleiki fyrir Frakkland. Marseille, undir stjórn Roberto De Zerbi, er í öðru sæti frönsku 1. deildarinnar eftir fjórar umferðir.

Daniele

...