Óli Björn Kárason
Óli Björn Kárason

Óli Björn Kárason alþingismaður ritaði athyglisverða grein um sóttvarnalög og sóttvarnaaðgerðir hér í blaðið í gær. Þar benti hann á að heilbrigðisráðherra hefði boðað frumvarp um ný sóttvarnalög sem lagt yrði fram á næstu dögum. Þessa lagasetningu telur Óli Björn nauðsynlega og framför frá gildandi lögum. En hann nefnir líka að verið sé að byrja á vitlausum enda: „Við eigum eftir að gera upp covid-tímann og svara mjög áleitnum spurningum um sóttvarnaaðgerðir sem gripið var til. Flestar snúa þær að því með hvaða hætti borgaraleg réttindi voru varin, hvaða lagaheimildir voru að baki takmörkunum sem gripið var til og með hvaða hætti farið var eftir meginreglum stjórnarskrár og réttarríkisins.“

Þá segir hann að fyrir þinginu liggi þingsályktunartillaga sex þingmanna Sjálfstæðisflokksins um skipun nefndar þriggja óháðra sérfræðinga til að greina sóttvarnaaðgerðir

...