— Morgunblaðið/Karítas

Hinn fimm ára gamli Franek Gniewko Birski vígði í gær þrettánhundruðasta rampinn í verkefninu Römpum upp Ísland. Rampurinn er á leikskólanum Bakkaborg í Breiðholti og á vafalaust eftir að reynast Franek sem notar hjólastól vel. Samnemendur Franeks fylgdust spenntir með þegar hann klippti á borða og notaði rampinn til að fara út á leiksvæði en þeir höfðu föndrað skilti fyrir tilefnið.