30 ára Ólöf er Grindvíkingur en býr í Kópavogi. Hún er að klára BA-gráðu í þroskaþjálfafræði við Háskóla Íslands. Ólöf vinnur á velferðarsviði hjá Reykjavíkurborg en er í fæðingarorlofi. Áhugamálin eru ferðalög og að vera með fjölskyldunni og vinum.


Fjölskylda Maki Ólafar er Brynjar Hróarsson, f. 1991, bifvélavirki á Almenna bílaverkstæðinu. Dóttir þeirra er Elva Lind, f. 2024. Foreldrar Ólafar eru hjónin Sigríður Jónasdóttir, f. 1973, og Sigurður Sævarsson, f. 1964, sjómaður hjá Gjögri, núna búsett á Selfossi.