Mark Victor Olatunji skorar annað mark Spörtu Prag í gær.
Mark Victor Olatunji skorar annað mark Spörtu Prag í gær. — AFP/Michal Cizek

Tékkneska liðið Sparta Prag byrjar afar vel í Meistaradeild Evrópu í fótbolta en liðið vann sannfærandi heimasigur á Salzburg frá Austurríki í gær. Urðu lokatölur 3:0. Kaan Kairinen, Victor Olatunji og Qazim Laci gerðu mörk Tékklandsmeistaranna.

Fjörið var öllu minna á Ítalíu hjá Bologna og Shakhtar Donetsk því liðin gerðu markalaust jafntefli. Var leikurinn sá fyrsti hjá Bologna í keppninni frá árinu 1964. Gestirnir frá Úkraínu fengu besta færi leiksins strax á 4. mínútu en Lukasz Skorupski í marki Bologna varði víti frá Heorhiy Sudakov.