Iðunn Óskarsdóttir fæddist í Reykjavík 18. janúar 1945. Hún lést 10. september 2024.

Móðir hennar var Gunnþóra Björgvinsdóttir kaupmanns á Fáskrúðsfirði Þorsteinssonar og Oddnýjar Sveinsdóttur konu hans.

Faðir hennar var Óskar Björnsson bónda á Berunesi við Reyðarfjörð Oddssonar og konu hans Guðlaugar Þorsteinsdóttur Kemp.

Systkini hennar eru Edda, f. 1940, d. 2020, gift Halldóri Inga Hannessyni, Oddný, f. 1948, gift Helga Guðmundssyni, og Óskar, f. 1952, d. 2013, kvæntur Ragnheiði Baldursdóttur. Hafsteinn og Ragnheiður eru sammæðra.

14. maí 1966 giftist hún Hafsteini Hafliðasyni garðyrkjufræðingi. Hann er sonur Sigríðar Salvarsdóttur frá Reykjarfirði við Djúp og síðar húsfreyju í Vigur og Hafliða Jónssonar frá Patreksfirði og síðar

...