Miss Flower Emilíana snýr aftur.
Miss Flower Emilíana snýr aftur.

Forsala fyrir aukatónleika Emilíönu Torrini, sem fram fara í Hörpu laugardaginn 9. nóvember og eru hluti af Icelandic Airwaves, hefst á morgun, föstudaginn 20. september, klukkan 10. Forsala fyrir korthafa Icelandic Airwaves hefst hins vegar í dag, fimmtudaginn 19. september, klukkan 10 og fá korthafar sérstakan afslátt af miðakaupunum.

Segir í tilkynningu að samhliða útgáfu lagsins „Let’s Keep Dancing“ hafi Emilíana tilkynnt útgáfu plötunnar Miss Flower sem kom út þann 21. júní og að uppselt sé nú þegar á tónleika hennar sem verða í Hörpu sunnudaginn 10. nóvember. Því hafi þessum aukatónleikum verið bætt við og sérstök athygli vakin um leið á því að ekki verði fleiri tónleikar í boði. Sérstakur gestur á tónleikunum verður finnski tónlistarmaðurinn Jaakko Eino Kalevi.