Myndlistarkonan Alfa Rós Pétursdóttir opnar sýningu sína Áferð hins óséða í Gallerí Gróttu í dag, fimmtudaginn 19. september, klukkan 17. Segir í tilkynningu að Alfa Rós brúi bilið milli samtímalistar og hefðbundins handverks
Handverk Sýningin er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins.
Handverk Sýningin er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins.

Myndlistarkonan Alfa Rós Pétursdóttir opnar sýningu sína Áferð hins óséða í Gallerí Gróttu í dag, fimmtudaginn 19. september, klukkan 17. Segir í tilkynningu að Alfa Rós brúi bilið milli samtímalistar og hefðbundins handverks.

„Í erfðaefni listar hennar eru litir, flæði og form ásamt knýjandi þörf fyrir að kanna hið óþekkta í umhverfinu og sjálfri sér.“ Þá samanstandi verkin af blöndu af útsaumi, flosi og öðrum handverksaðferðum. Alfa útskrifaðist með BA-gráðu frá Gerrit Rietveld-­akademíunni í Amsterdam árið 2011. Eftir útskrift flutti hún aftur til Íslands, vann í hlutastarfi við listina og sýndi verk sín ásamt fullu kennslustarfi auk þess að ljúka MA-gráðu í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands.