Dómari Pétur Guðmundsson dæmir bikarúrslitaleikinn á morgun.
Dómari Pétur Guðmundsson dæmir bikarúrslitaleikinn á morgun. — Morgunblaðið/Ólafur Árdal

Pétur Guðmundsson mun dæma úrslitaleik KA og Víkings úr Reykjavík í bikarkeppni karla í knattspyrnu sem fram fer á Laugardalsvelli á morgun. Aðstoðardómarar verða þeir Bryngeir Valdimarsson og Gylfi Már Sigurðsson en Vilhjálmur Alvar Þórarinsson verður fjórði dómari. Eftirlitsmaður KSÍ verður Gunnar Jarl Jónsson. Pétur dæmdi síðast bikarúrslitaleik Víkings og FH árið 2019 sem lauk með sigri Víkings, 1:0.