Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og innviðaráðherra staðfestu í gær samninga fjarskiptasjóðs við 25 sveitarfélög um að ljúka ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Lengi hefur ríkt óvissa um hvort, og þá hvenær, mörg þúsund…
Samband Ljósleiðaravæðingin heldur áfram til loka árs 2026.
Samband Ljósleiðaravæðingin heldur áfram til loka árs 2026. — Morgunblaðið/Eggert

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og innviðaráðherra staðfestu í gær samninga fjarskiptasjóðs við 25 sveitarfélög um að ljúka ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Lengi hefur ríkt óvissa um hvort, og þá hvenær, mörg þúsund lögheimili í þéttbýli um land allt munu eiga kost á háhraðanetsambandi, sem er mikilvægt öryggismál og undirstaða nútímabúsetugæða. Með þessum samningum er sú óvissa ekki lengur fyrir hendi, segir í tilkynningu ráðuneytanna.

Skuldbinding ríkisins er um 340 milljónir króna gangi öll uppbyggingin eftir.

Fjarskiptastofa kannaði í vor áform fjarskiptafyrirtækja og opinberra aðila um uppbyggingu á ljósleiðara í öllu þéttbýli árin 2024 til 2026. Könnunin leiddi í ljós að slík áform náðu ekki til 4.438 heimilisfanga í 48 sveitarfélögum. Fjarskiptasjóður gerði sveitarfélögunum því tilboð um 80 þúsund kr. styrk

...