Kvartett söngkonunnar Rebekku Blöndal kemur fram á næstu Síðdegistónum í Hafnarborg í dag, 20. september, kl. 18. Þessi nýlegi kvartett samanstendur af Rebekku, sem syngur, gítarleikaranum Andrési Þór, Matthíasi Hemstock á trommum og Birgi Steini Theódórssyni á kontrabassa. Kvartettinn flytur nýlegt efni sem er væntanlegt til útgáfu frá Rebekku í bland við eldra efni og efni eftir aðra höfunda. Tónleikarnir standa í um klukkustund og er aðgangur ókeypis.