Sóley Stefánsdóttir fæddist 14. janúar 1945. Hún lést 3. september 2024.

Útför Sóleyjar fór fram 16. september 2024.

Það var vorið 2019 sem sjö GKG-golfvinkonur tóku sig saman og bjuggu til formlega grúppu utan um golfið sitt. Klæddu sig upp með stæl í fallega hvítt, settu á sig bleika hatta og skörtuðu fjólubláum golfhönskum. Tilefnið var að stimpla sig inn í liðakeppni klúbbsins og golfskvísurnar flottu, sem kölluðu sig Valkyrjur, gerðu það með þokkalegum stæl og skemmtilegri spilagleði. En ekki bara þar; Valkyrjuhópurinn reyndist svo líflegur og skemmtilegur félagsskapur að hann gat ekki annað en stækkað og blómstrað, hvort sem var í golfi, búningagleði eða öðru gamni og hæfilegri alvöru. Áður en við vissum af voru Valkyrjurnar orðnar fjórtán talsins, golfskvísur sem njóta þess að hittast allan ársins hring til að leika sér saman í golfi

...