Náttskyrta frá Tekla, fæst í Officina og kostar 27.990 kr.
Náttskyrta frá Tekla, fæst í Officina og kostar 27.990 kr.

Á haustin er tilvalið að gera heimilið hlýlegra, skipta nokkrum hlutum út og leggja áherslu á notalega birtu. Við munum sjálfsagt eyða miklum tíma innandyra næstu mánuði hvort sem það er uppi í sófa eða í eldhúsinu. Það má fríska upp á heimilið á ódýrari hátt með því að skipta út púðunum í sófanum í dekkri liti enda mikið úrval af alls konar púðaverum í verslunum. Horfðu á liti eins og mosagrænan, dökkbrúnan eða ryðrauðan og hafðu jafnvel teppi í stíl. Margir eyða tíma við hægeldun í eldhúsinu í verstu lægðunum og svarta eldfasta mótið er fáanlegt í ýmsum stærðum og gerðum. Bjóðum rútínu og ró velkomna, það er ekki að ástæðulausu að þessi árstími sé uppáhald margra.