Áform Mosfellsbæjar um efnistöku úr Seljadalsnámu sem er skammt austan Hafravatns vekja litla hrifningu húseigenda á svæðinu og gerir stjórn Félags sumarhúsaeigenda við Krókatjörn, Myrkurtjörn og Silungatjörn ýmsar athugasemdir við…
— Morgunblaðið/óej

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

Áform Mosfellsbæjar um efnistöku úr Seljadalsnámu sem er skammt austan Hafravatns vekja litla hrifningu húseigenda á svæðinu og gerir stjórn Félags sumarhúsaeigenda við Krókatjörn, Myrkurtjörn og Silungatjörn ýmsar athugasemdir við umhverfismatsskýrslu verkefnisins sem nú er til umsagnar í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.

Í umsögn sinni um umhverfismatsskýrsluna segir félagið hana byggða á röngum forsendum og villandi upplýsingum. Að mati stjórnarinnar mun framkvæmdin hafa verulega neikvæð áhrif á hljóðvist, ásýnd náttúrunnar á umræddu svæði, loftgæði og dýralíf ásamt því að leiða til óafturkræfs rasks á náttúru svæðisins.

Efnistaka hefur ekki farið fram í námunni frá árinu 2016, en samkvæmt fyrirliggjandi áformum er

...