Dyggðabrölt af ýmsu tagi hefur verið í tísku síðustu ár, en að því víkja hrafnar Viðskiptablaðsins: „Fáum dylst að rekstrarskilyrði fyrirtækja eru með erfiðara móti um þessar mundir
María Björk Einarsdóttir
María Björk Einarsdóttir

Dyggðabrölt af ýmsu tagi hefur verið í tísku síðustu ár, en að því víkja hrafnar Viðskiptablaðsins: „Fáum dylst að rekstrarskilyrði fyrirtækja eru með erfiðara móti um þessar mundir. Hröfnunum sýnist að stjórnendur fyrirtækja hafi í ríkari mæli áttað sig á því að kjarninn í sjálfbærnivegferðinni svokölluðu sé að reksturinn skili hluthöfum viðunandi arði og viðskiptavinum góðri þjónustu.

Þannig lagði Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, niður sviðið „sjálfbærni og rekstur í fasteignum“, sem var eitt stoðsviða félagsins, og fækkaði framkvæmdastjórum um einn. Eitt af fyrstu verkum Maríu Bjarkar Einarsdóttur í forstjórastól Símans var að leggja niður svið „sjálfbærni og menningar“.

Hins vegar er engan bilbug að finna á Benedikt Gíslasyni bankastjóra Arion en hann leitast nú við

...