28 högg Guðrún Brá Björgvinsdóttir lauk leik á þremur undir pari.
28 högg Guðrún Brá Björgvinsdóttir lauk leik á þremur undir pari. — Ljósmynd/Tristan Jones/

Guðrún Brá Björgvinsdóttir náði sínum besta árangri á LET Access-mótaröðinni í golfi er hún hafnaði í fjórða sæti á Hauts de France-Open mótinu í Stain Omer í Frakklandi í síðustu viku. Guðrún lék hringina tvo á 71 og 70 höggum. Átti að leika þrjá hringi en það tókst ekki vegna mikillar rigningar. Hún lauk leik á þremur höggum undir pari og er í 28. sæti af 30 kylfingum á stigalista mótaraðarinnar. 30 efstu komast áfram á annað stig úrtökumóta í haust.